Netöryggisráðstefna CERT-IS og HVIN
Í tilefni alþjóðlegs netöryggismánaðar efna CERT-IS og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið til ráðstefnu um gagnagíslatökur, þróun þeirra og áhrif á rekstur fyrirtækja og stofnana.
Ráðstefnan er sérstaklega ætluð fólki með ábyrgð á rekstri og fjármunum fyrirtækja og stofnana.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra netöryggismála, setur ráðstefnuna.
Ráðstefnan fer fram í Gullteig á Grand Hótel þann 31. október frá 13:00 til 16:30 og boðið verður upp á léttar veitingar að henni lokinni.
SMELLIÐ HÉR FYRIR NÁNARI UPPLÝSINGAR.