Vöxtur og bestun vefverslana

Vöxtur og bestun vefverslana

SVÞ í samstarfi við KoiKoi býður til heillrar viku af fyrirlestrum og reynslusögum fyrir þau sem vilja taka vefverslunina sína upp á næsta stig.

Covid-19 hefur hraðað þróun íslenskrar vefverslunar svo um munar. Fyrirtæki hafa þurft að bregðast hratt við margvíslegum áskorunum, ekki síst óskum og þörfum viðskiptavina um betra viðmót og þjónustu vefverslana. Fyrirtæki hér á landi hafa tekið stór skref í umbótum en ljóst er að til mikils er að vinna með því að þróa og bæta stöðugt vefverslanir og markaðssetningu þeirra.

Jafnt innlendir sem erlendir sérfræðingar munu miðla af reynslu sinni og þekkingu um allt mögulegt sem viðkemur vefverslun, allt frá uppbyggingu hennar til „last mile delivery” og allt þar á milli.

Dagskráin hefur verið birt hér fyrir neðan. Við áskiljum okkur rétt til breytinga.

AÐGANGUR ER ÖLLUM OPINN OG ENDURGJALDSLAUS en upptökur verða eingöngu gerðar aðgengilegar félagsmönnum í SVÞ.

ATHUGIÐ AÐ VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA HÖFUM VIÐ ÁKVEÐIÐ AÐ OPNA RÁÐSTEFNUNA FYRIR ÞEIM SEM EKKI NÁÐU AÐ SKRÁ SIG Í TÍMA. ÞAÐ ÞARF ÞÓ AÐ SKRÁ SIG INN Í RÁÐSTEFNUKERFIÐ.

AÐGANGUR HÉR: https://eventee.co/event/26081

Hourly Schedule

Mánudagur 1. febrúar

8:30 - 8:50
Opnunarfyrirlestur: Þróun í vefverslun 2018-2020
Edda Blumenstein, forstöðumaður Rannsóknarseturs verslunarinnar, formaður í faghópnum Stafræn viðskipti á Íslandi hjá SVÞ og ráðgjafi hjá BeOmni
8:50 - 9:00
Ef þú ert með vefsíðu, þá ertu með vefverslun!
Elvar Örn Þormar, meðstofnandi KoiKoi
9:00 - 9:40
Fjárfesting í upplifun skapar árangur
Björgvin Pétur Sigurjónsson, Creative Director hjá Jökulá
9:45 - 10:00
Reynslusaga: Með næstu 100 ár í huga. Vefur fyrir krefjandi aðstæður
Þórunn Edwald, vefstjóri 66 Norður
10:00 - 10:15
Efnis bestun vörusíðna
Arna Gunnur Ingólfsdóttir, Head of Digital hjá WebMo Design
10:20 - 10:45
Building Community with Owned Marketing Channels
Phil Greenwood, Senior Account Manager, EMEA, Klaviyo

Þriðjudagur 2. febrúar

8:30 - 9:10
Lekur trektin?
Sigurður Svansson, eigandi og Head of Digital hjá Sahara
9:14 - 9:30
Reynslusaga: Að þora að byrja
Baldvina Snælaugsdóttir, markaðsstjóri Kringlunnar
9:45 - 10:25
Leynitrikk markaðskonu, frá gulrótum til sigurs!
Ósk Heiða Sveinsdóttir, forstöðumaður markaðsdeildar Póstsins
10:30 - 11:15
Leitin að nálinni - leitarvélabestun fyrir vefverslanir
Davíð Arnarson, ráðgjafi hjá Datera

Miðvikudagur 3. febrúar

8:30 - 9:20
Auglýsingaherferðir sem mala gull fyrir netverslanir
Tryggvi Freyr Elínarson, eigandi og þróunarstjóri Datera
9:25 - 9:40
Reynslusaga: Ákvarðanir sem skiptu sköpum
Renata S. Blöndal, yfirmaður viðskiptaþróunar hjá Krónunni
9:50 - 10:35
Kostaðar aðgerðir á samfélagsmiðlum
Arnar Gunnarsson, sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu hjá Digido
10:45 - 11:30
Data and Automation in Reporting: the New Competitive advantage
Meaghan Connell, CEO, Praxis

Fimmtudagur 4. febrúar

9:00 - 10:00
Færni til framtíðar
Menntadagur atvinnulífsins, þar sem efnistökin eiga heldur betur vel við ráðstefnuna
10:10 - 10:20
Reynslusaga: Áskriftir eru framtíðin, eða hvað?
Kristófer Júlíus Leifsson, framkvæmdastjóri Eldum rétt
10:30 - 11:15
Sölubestun - „Conversion Rate Optimisation" (CRO)
Hörður Ólafsson, CEO, KoiKoi

Föstudagur 5. febrúar

8:30 - 8:55
Afhendingar sem auka sölu og spara tíma
Hrólfur Andri Tómasson, framkvæmdastjóri Dropp.is
9:00 - 9:15
Reynslusaga: Vöxtur Aurum á netinu
Karl Jóhann Jóhansson, framkvæmdastjóri Aurum
9:25 - 10:10
Tækifæri íslenskra netverslana og þjónusta við viðskiptavini um allan heim
Björn Viðar Ásbjörnsson, sölu- og markaðsstjóri og Hrafn Kristjánsson, Key Account Manager, DHL Express á Íslandi
10:05 - 10:15
Lokafyrirlestur: Vefverslun - meira en bara sölukanall...
Edda Blumenstein, forstöðumaður Rannsóknarseturs verslunarinnar, formaður í faghópnum Stafræn viðskipti á Íslandi hjá SVÞ og ráðgjafi hjá BeOmni

Dagsetning

1.febrúar, 2021 - 5.febrúar, 2021

Tími

08:30 - 11:45
Eventee

Staðsetning

Eventee