Ræktum vitið – Eflum hæfni starfsfólks í verslun og þjónustu
Eflum hæfni starfsfólks í íslenskri verslun og þjónustu
Hinn 17. febrúar 2025 munu SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu og VR/LÍV fagna næsta skrefi á samstarfssamningi samtakanna frá mars 2023 um hæfniaukningu starfsfólks í verslun og þjónustu með formlegri opnun á vefsíðunni ‘Ræktum Vitið‘
Viðburðurinn, sem ber yfirskriftina „Ræktum vitið“, er opinn öllum sem vilja stuðla að vexti og þróun íslensks vinnuafls.
Staður: Hús verslunarinnar, Kringlan 7, 103 Reykjavík – 9.hæð
Tími: 13:00 – 14:00
Samstarfssamningurinn,sem var undirritaður á ráðstefnu SVÞ 2023, miðar að því að efla hæfni starfsfólks í verslun og þjónustu með eftirfarandi þremur meginmarkmiðum:
- Sí- og endurmenntun: Stefnt er að því að 80% starfsfólks í verslun og þjónustu taki reglulega þátt í sí- og endurmenntun til að auka hæfni sína og þekkingu.
- Íslenskukunnátta nýbúa: Sérstök áhersla er lögð á að auka íslenskukunnáttu þeirra sem hafa íslensku sem annað tungumál, með það að markmiði að 80% þessa hóps nái B1 hæfni í íslensku fyrir árið 2030.
- Vottanir og fagbréf: Þróa og innleiða viðurkenndar vottanir eða fagbréf fyrir starfsgreinar og hæfnisnám í verslun og þjónustu, auk þess að veita fyrirtækjum viðurkenningu þegar 80% starfsfólks tekur árlega þátt í sí- og endurmenntun.
Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að efla hæfni og þekkingu íslensks vinnuafls til að mæta og taka þátt í þessum spennandi viðburði.
Nánari dagskrá mun birtast þegar nær dregur.
Komdu og vertu hluti af framtíðarsýn sem stuðlar að öflugra og hæfara vinnuafli á Íslandi!