Umræða um eldsneytisverð hefur verið áberandi undanfarna daga, ekki síst eftir að Hagstofa Íslands gaf það út að verð á bensíni hefði hækkaði um 5,8% í marsmánuði og verð á dísilolíu um 6,9%. Í kjölfarið kallaði m.a. einn verkalýðsleiðtogi eftir einhvers konar verðþaki á olíu og gaf til kynna að söluaðilar eldsneytis hækkuðu eldsneytisverð með forvirkum hætti.

Þegar þróunin er skoðuð í alþjóðlegu samhengi blasir önnur mynd við en sú sem gjarnan er dregin upp í opinberri umræðu. Samanburður á meðalsöluverði eldsneytis á Norðurlöndum frá áramótum sýnir að þær hækkanir sem hafa komið fram hér á landi hafa verið mun minni í krónum talið en annarsstaðar.

Gögn frá GlobalPetrolPrices gefa þessa niðurstöðu til kynna. Á tímabilinu frá 5. janúar til 23. mars á þessu ári var verðhækkun á dísilolíu til að mynda lægst hér á landi af Norðurlöndunum og verðhækkun á bensíni næst lægst. Bensínverð hækkaði hér á landi um 22 kr. á lítrann á tímabilinu á meðan hækkunin nam 15–86 kr. á hinum Norðurlöndum. Verð á dísilolíu hækkaði um 32 kr. á lítrann hér á landi en um 33–99 kr. á hinum Norðurlöndunum.

Í ljósi þess að eldsneytisverð á Íslandi hefur ekki hækkað jafn mikið og á hinum Norðurlöndum má færa rök fyrir því að íslenskir söluaðilar hafi hvorki velt kostnaðarhækkunum hraðar út í verð en sambærileg fyrirtæki erlendis né í meira mæli, heldur hið öndverða.

Þó þetta liggi fyrir breytir það því ekki að hækkandi eldsneytisverð hefur bæði bein og óbein áhrif á heimili og fyrirtæki. Þróun á alþjóðavísu hefur áhrif hér eins og annarsstaðar og getur orðið mjög neikvæð. Það skiptir hins vegar máli að umræðan sé á réttum stað og grundvallist á yfirvegun.

Gögnin sýna að verð á íslenskum eldsneytismarkaði hefur þróast með mun hóflegri hætti en á þeim mörkuðum sem við berum okkur helst saman við. Það er m.a. mikilvægt að hafa það í huga þegar farið er fram á að gripið sé til harkalegra inngripa á borð við verðþak og gefið til kynna að íslensk fyrirtæki gangi harðar fram en annarsstaðar.

Að lokum ber að taka fram að það er fyrirtækjanna sjálfra að finna leiðir til að bregðast við verðbreytingum á alþjóðavísu.

  • Facebook
  • Twitter
  • Gmail
  • LinkedIn

  • Facebook
  • Twitter
  • Gmail
  • LinkedIn