HVAÐ ER AÐ GERAST HJÁ STJÓRNVÖLDUM?
Formaðurinn í Bítinu um eflingu stafrænnar hæfni
Jón Ólafur Halldórsson, formaður SVÞ, var í Bítinu hjá Heimi og Gulla í morgun þar sem hann ræddi þörfina til að efla Ísland í stafrænni þróun, ekki síst stafrænni hæfni. SVÞ og VR munu á morgun senda hvatningu og tillögur til ríkisstjórnarinnar um stefnumótun og aðgerðir í stafrænum málum sem verða einnig kynntar á aðalfundi faghópsins Stafræn viðskipti á Íslandi í fyrramálið.
Ekkert eftirlit með eftirlitinu?
Benedikt S. Benediktsson, lögfræðingur SVÞ, skrifar um nauðsynlegt eftirlit með eftirlitinu í formi fargsnyrplingar…
Tollar af blómum geta numið nær þreföldu innkaupsverði
SVÞ hefur sent erindi til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og óskað eftir því að tollar af innfluttum blómum og plöntum verði teknir til endurskoðunar. Tollarnir eru afar háir þrátt fyrir að takmarkað framboð sé hjá innlendum framleiðendum og heildsölum.
Útvistun verkefna er sjálfsagður kostur
Formaðurinn skrifar um útvistun verkefna frá hinu opinbera til einkaaðila enda eru innan SVÞ fjöldinn allur af fyrirtækjum sem eru sérhæfð á ýmsum sviðum og meira en tilbúin til að taka þessi verkefni að sér, sannfærð um að í felist veruleg hagræðing og góð nýting á almannafé.
Útflutningshagsmunir Íslands séu tryggðir í nýjum fríverslunarsamningi
Forystufólk úr atvinnulífinu fundaði í gær með Guðlaugi Þór Þórðarssyni utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra um fríverslunarviðræður Íslands, Noregs og Liechtenstein við Bretland.
Auglýst eftir tilboðum í kynningarherferð stjórnvalda og atvinnulífsins
Ríkiskaup fyrir hönd atvinnuvega‐ og nýsköpunarráðuneytisins hefur óskað eftir tilboðum í kynningarherferð um að verja störf og auka verðmætasköpun í íslensku samfélagi og stýra birtingu hennar í fjölmiðlum.