UMSAGNIR
lorem ipsum
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum (skatthlutfall eldsneytis)
SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu skiluðu umsögn, dags. 17. apríl 2026, þar sem samtökin lýsa stuðningi við tímabundna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti en benda á ýmsa annmarka á framkvæmd frumvarpsins. Í umsögninni eru m.a. gerðar athugasemdir við óskýrt...
ESB þarf að taka mið af stöðu eyja – áhrif á samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs
Efnahagsleg staða Íslands mótast af landafræði – og það þarf að sjást í stefnumótun ESB. Það er kjarninn í nýrri umsögn Samtaka atvinnulífsins (SA), SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu, Samtaka ferðaþjónustu og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, þar sem fjallað er um...
Umsögn um frumvarp til laga um innviðafélag
SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu skiluðu umsögn, dags. 10. apríl 2026, um frumvarp til laga um innviðafélag þar sem samtökin lýsa stuðningi við markmið um uppbyggingu samgönguinnviða en leggja áherslu á að taka þurfi mið af efnahagslegum áhrifum við forgangsröðun...
Umsögn um frumvarp til laga um viðbrögð við lyfjaskorti o.fl.
SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu hafa, fyrir hönd Samtaka lyfjaheildsala, skilað umsögn, dags. 7. apríl 2026, um frumvarp til laga um viðbrögð við lyfjaskorti o.fl., þar sem bent er á skort á heildrænni greiningu og óvissu um áhrif breytinga á lyfjamarkað. Í...
Umsögn SVÞ um breytingu áfengislaga
SVÞ sendu 23. mars 2026 umsögn um frumvarp til breytinga á áfengislögum um vefverslun með áfengi. Samtökin styðja frumvarpið og telja tímabært að laga löggjöfina að breyttum verslunarháttum og raunveruleika vefverslunar. Þau leggja áherslu á að heimila innlenda...
Umsögn um þingsályktunartillögu um endurskoðun tollameðferðar á matvæli
SVÞ sendu 17. mars 2026 umsögn um þingsályktunartillögu um endurskoðun tollameðferðar á matvælum, þar sem samtökin telja ekki þörf á frekari tollahækkunum. Þau vara við neikvæðum áhrifum á verð og samkeppni og leggja áherslu á einfaldara virðisaukaskattskerfi og...
Umsögn SVÞ um deiliskipulag Borgarlínu á Suðurlandsbraut
SVÞ sendu 12. mars 2026 umsögn um deiliskipulag Borgarlínu á Suðurlandsbraut þar sem samtökin telja tillöguna ganga of langt gagnvart hagsmunum fyrirtækja og starfsfólks á svæðinu. Þau vara sérstaklega við verulegri fækkun bílastæða, auknum umferðarþunga og neikvæðum...
Umsögn SVÞ um grænbók um byggðamál
SVÞ sendu 2. mars 2026 umsögn um grænbók um byggðamál þar sem samtökin leggja áherslu á að góðir innviðir, sérstaklega vegasamgöngur, séu grundvallarforsenda byggðarþróunar. Þau kalla eftir markvissri uppbyggingu vegakerfisins á grundvelli kostnaðar- og...
Umsögn SVÞ Saman gegn sóun
SVÞ sendu 2. mars 2026 umsögn um drög að stefnu og aðgerðaáætluninni Saman gegn sóun. Samtökin styðja markmið stefnunnar en leggja áherslu á virkt samráð við atvinnulífið, uppfærð gögn og aðgerðir sem samræmast þróun í nágrannalöndum. SVÞ vara jafnframt við að ganga...
Umsögn SVÞ frumvarp um breytingar á lögum um ökutækjatryggingar
SVÞ sendu 2. mars 2026 umsögn um frumvarp um breytingar á lögum um ökutækjatryggingar. SMELLTU HÉR til að lesa umsögn SVÞ.