SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu skiluðu umsögn, dags. 19. apríl 2026, þar sem samtökin lýsa skýrum stuðningi við frumvarp um einföldun eftirlits og telja það mikilvægt skref til að bæta samræmi og skilvirkni í eftirliti.

Í umsögninni er bent á að núverandi fyrirkomulag eftirlits hafi verið ósamræmt og að færsla verkefna til ríkisstofnana geti styrkt samhæfingu, aukið gagnsæi og bætt rekstrarskilyrði fyrirtækja.

SMELLTU HÉR til að hlaða niður allri umsögninni.