
Aðalfundur Samtaka heilbrigðisfyrirtækja 2025
AÐALFUNDARBOÐ
Aðalfundur Samtaka heilbrigðisfyrirtækja 2025 verður haldinn fimmtudaginn 19. júní 2025 kl. 16:00, í fundarsalnum Hóli, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík.
Dagskrá:
15:50 Húsið opnar
16:00 Setning fundar
- Formaður setur aðalfund
- Skipun fundarstjóra og fundarritara
- Ávarp heilbrigðisráðherra og umræður
- Önnur aðalfundarstörf
- Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
- Stjórnarkjör:
- a) Kjör formanns
- b) Kjör tveggja meðstjórnenda
- c) Kjör tveggja varamanna
Önnur mál
Nánari upplýsingar Samþykktir Samtaka heilbrigðisfyrirtækja má finna HÉR!
Samkvæmt 4. gr. samþykkanna skal stjórn samtakanna skipuð fimm einstaklingum, þ.e. formanni, varaformanni og þremur meðstjórnendum. Hver aðili að samtökunum má aðeins hafa einn fulltrúa í stjórn. Formaður skal kosinn á hverjum aðalfundi. Aðrir stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára í senn, en þó skal einungis kjósa tvo þeirra á hverjum aðalfundi. Á hverjum aðalfundi skal kjósa tvo menn í varastjórn, fyrsta varamann og annan varamann.
Þeim sem hafa hug á að bjóða sig fram til setu í stjórn Samtaka heilbrigðisfyrirtækja er bent á að skynsamlegt er að tilkynna framboð fyrir fram með tölvupósti til Benedikts, framkvæmdastjóra SVÞ, benedikt(hjá)svth.is. Þó verður unnt að tilkynna framboð á aðalfundi undir umfjöllun um 5. dagskrárlið (Stjórnarkjör).