
Aðalfundur SVÞ 2025
DAGSKRÁ AÐALFUNDAR SVÞ – SAMTAKA VERSLUNAR OG ÞJÓNUSTU
Við minnum á aðalfund SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu hinn 13. mars 2025 kl. 11:00 á Parliament Hotel Reykjavík, Gamli Kvennó – Blái salur 2. hæð, Thorvaldsen stræti 2–6, 101 Reykjavík.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
1. Ræða formanns SVÞ
2. Skýrsla stjórnar SVÞ fyrir liðið starfsár
3. Reikningar SVÞ fyrir liðið reikningsár
4. Lýst kosningu formanns SVÞ
5. Lýst kosningu meðstjórnenda í stjórn SVÞ
6. Lýst kosningu í fulltrúaráð Samtaka atvinnulífsins
7. Kosning löggilts endurskoðanda SVÞ
8. Breytingar á samþykktum SVÞ
9. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál
RÁÐSTEFNA SVÞ 2025 – UPPBROT: FÓLK – TÆKNI – SAMKEPPNI
Einnig minnum við á ráðstefnu samtakanna sem haldin er í kjölfar aðalfundar, kl. 13:00 á Parliament Hotel Reykjavík. Ráðstefna SVÞ er stærsta ráðstefna fólks og fyrirtækja í verslunar- og þjónustugreinum. Ráðstefnan í ár fjallar um þær umbreytingar sem móta verslun og þjónustu á Íslandi í dag, undir þremur lykilþemum: FÓLK – TÆKNI – SAMKEPPNI. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má nálgast hér: https://svth.is/radstefna2025