Í framhaldi af fyrirlestri Eddu Blumenstein þann 29. janúar undir yfirskriftinni Að lifa af í breyttum heimi verslunar og þjónustu: Omni Channel stefnumörkun sem eykur samkeppnishæfni þíns fyrirtækis, verður haldin heilsdags vinnustofa þann 26. febrúar nk. frá kl. 9-5 þar sem þátttakendur marka omni channel stefnu fyrir sitt fyrirtæki undir leiðsögn Eddu.

Á vinnustofunni munu þáttakendur:

  1. Kortleggja núverandi stöðu fyrirtækisins síns – Skynja
  2. Greina tækifæri fyrirtækisins – Grípa
  3. Setja upp aðgerðaáætlun fyrir sitt fyrirtæki – Umbreyta

Afraksturinn verður skýr stefna og aðgerðaráætlun sem eflir samkeppnishæfni þíns fyrirtækis í sítengdum heimi.

Verð fyrir SVÞ félaga:

Kr. 25.000 fyrir fyrsta aðila frá fyrirtæki en aðrir frá sama fyrirtæki greiða kr. 10.000,-

Verð fyrir aðra:

Kr. 45.000 fyrir fyrsta aðila en aðrir frá sama fyrirtæki greiða kr. 15.000,-

Vinsamlegast skráið ykkur hér fyrir neðan. Upplýsingar um greiðslu verða sendar megintengilið fyrirtækisins. Skráning er ekki staðfest fyrr en gengið hefur verið frá greiðslu. Athugið að SVÞ áskilur sér rétt til að afboða vinnustofuna ef ekki er næg þátttaka.