FRÆÐSLA
SVÞ leggur áherslu á að efla menntun sem tengist verslun og þjónustu. Í því felst að samtökin láta sig varða og taka þátt í mótun grunn- og framhaldsmenntunar fyrir starfsgreinarnar að teknu tilliti til þarfa verslunar- og þjónustugreina. Auk þess er lögð áhersla á að styðja við endurmenntun og starfsmenntun fólks sem þegar er starfandi í verslunar- og þjónustufyrirtækjum.
SVÞ móta stefnu í verslunar- og þjónustumenntun ásamt yfirvöldum menntamála, launþegasamtökum og öðrum félagasamtökum eftir því sem við á.
SVÞ taka þátt samstarfi við önnur atvinnurekendasamtök innana vébanda Samtaka atvinnulífsins á sviði fræðslu- og menntamála og eiga sæti í nefndum og ráðum á vegum fræðsluyfirvalda. Fulltrú SVÞ situr í stjórn SVS Starfsmenntasjóðs verslunar og skrifstofufólks link á sjóðinn.
Stafræn viðskiptalína er ný námslína á framhaldsskólastigi sem SVÞ átti frumkvæði að koma á laggirnar í samstarfi við Verzlunarskóla Íslands, fulltrúa atvinnulífsins og SVS. Verið er að vinna að námsleiðinni Fagnámi verslunar í samvinnu SVÞ, SVS og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Hluti verkefnisins er þróun raunfærnimats á móti námsbrautinni. Stefnt er að því að hefja námið í janúar 2020.
Að auki standa samtökin að metnaðarfullri fræðslu- og viðburðardagskrá fyrir félagsmenn sína með því markmiði að hjálpa þeim að fylgjast með því sem er að gerast innan verslunar og þjónustu bæði hérlendis og erlendis, og auka samkeppnishæfni þeirra.
FRÆÐSLUVIÐBURÐIR Á NÆSTUNNI
Námskeið: Áhrifarík markaðsssetning með tölvupósti, 20. nóvember 2018
Markaðssetning með tölvupósti er vannýttasta markaðsaðferðin á íslenskum markaði, þrátt fyrir að rannsóknir sýni að hún er sú arðbærasta af öllum starfrænum markaðsaðgerðum.
Fræðslufyrirlestur: Facebook Messenger Spjallmenni, 6. nóvember 2018
Erindi um Facebook Messenger Spjallmenni (e. chatbots) og hvernig fyrirtæki geta nýtt sér þau spennandi tækifæri sem þeir bjóða upp á.
Fræðslufyrirlestur: Greining á upplifun viðskiptavina, 16. október 2018
Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig fyrirtæki geta greint upplifun og kaupferli viðskiptavina (Customer Journey) til að koma auga á tækifæri til að bæta upplifun og greina mikilvægustu snertifletina, kanna sársaukastig og hvaða tækifæri séu til úrbóta og nýsköpunar.
Morgunverðarrráðstefna: Íslensk netverslun, 11. október 2018
SVÞ ásamt Rannsóknarsetri verslunarinnar efna til morgunverðarráðstefnu um íslenska netverslun, fimmtudaginn 11. október kl. 8:30-10:00 á Hótel Natura. Í kjölfar útgáfu nýrrar skýrslu um íslenska netverslun mun fjallað um stöðu íslenskrar netverslunar og þær áskoranir sem í henni felast.
Frá vinnustofu um nýjustu tækni við markaðssetningu á netinu
Í framhaldi af ársfundi SVÞ þann 23. mars sl. þar sem fjallað var um byltingu og breytingu í þjónustu ætlar SVÞ að vera leiðandi við innleiðingu stafrænnar tækniþróunar hjá fyrirtækjum í verslun og þjónustu. Strax í kjölfar aðalfundar stóð SVÞ fyrir vinnustofu fyrir...
Vinnustofa – Nýjustu tæknimöguleikar í markaðssetningu á netinu
Samtök verslunar og þjónustu ætla sér að vera leiðandi við innleiðingu stafrænnar tækniþróunar hjá fyrirtækjum í verslun og þjónustu. SVÞ mun aðstoða aðildarfyrirtæki við að takast á við þær áskoranir sem fyrirtæki standa frammi fyrir vegna framþróunar stafrænnar...