Í samræmi við lög SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu fer fram kosning meðstjórnenda SVÞ fyrir kjörtímabilið 2018-2020 í tengslum við aðalfund samtakanna þann 15. mars nk. og þar hefur hver félagsaðili atkvæði í hlutfalli við greidd félagsgjöld ársins 2017. Hverjum heilum 1.000 krónum í greiddum félagsgjöldum fylgir eitt atkvæði. Tekið skal fram að enn er hægt að öðlast atkvæðisrétt með því að greiða vangoldin félagsgjöld.
Árlega er kosið um meðstjórnendur og að þessu sinni er kosið um þrjú almenn stjórnarsæti. Alls bárust sex framboð.
Nánari upplýsingar og lykilorð verða send á félagsmenn mánudaginn 5. mars nk. en opnað verður fyrir kosningu þann sama dag.
Í framboði til stjórnar SVÞ eru:
Auður Jóhannesdóttir
Framkvæmdastjóri Lifu ehf. og stjórnarmaður í Kokku ehf.
Auður Jóhannesdóttir er framkvæmdastjóri heildsölunnar Lifu ehf. og stjórnarmaður í Kokku ehf. Auður hefur starfað við smásölu og heildsölu á Íslandi frá 2005 og hefur mikinn áhuga á þróun verslunar og þeim áskorunum og tækifærum sem felast í breyttu neyslumynstri og aukinni tæknivæðingu, sérstaklega þróun á úrvinnslu persónumynstra og notendastýrðrar sölu og þjónustu. Áður en hún hóf störf í Kokku og síðar Lifu gegndi hún stöðu þjónustustjóra tæknilegrar þjónustu hjá Teymi og hefur því einnig innsýn í heim þjónustu- og ráðgjafarsölu.
Auður er tölvunarfræðingur frá Háskóla Íslands 2004 og MBA frá Háskólanum í Reykjavík 2006.
Elín Hjálmsdóttir
Framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðssviðs Eimskips
Elín hefur gegnt stjórnunarstörfum hjá Eimskip frá árinu 2006, fyrst sem deildarstjóri, síðar starfsmannastjóri og framkvæmdastjóri mannauðssviðs en tók við núverandi starfi sem framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðssviðs árið 2017. Hún hefur fjölbreytta reynslu á sviði stjórnunar og stefnumótunar, kjara- og fræðslumála auk víðtækrar þekkingar á þeim ólíku störfum sem stórt fyrirtæki í verslun og þjónustu á Íslandi hefur uppá að bjóða. Elín hefur setið í stjórn Eimskip Ísland ehf. frá árinu 2013 og sat í stjórn Kortaþjónustunnar árið 2016 – 2017.
Sem stjórnandi til margra ára innan flutningagreinarinnar tel ég mig búa að fjölbreyttri þekkingu og reynslu sem gæti nýst vel innan SVÞ. Ég vil leggja mitt af mörkum til að efla samtökin, verslun og þjónustu í landinu til hagsbóta.
Gunnar Egill Sigurðsson
Framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa hf.
Gunnar Egill Sigurðsson er framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa sem eiga og reka Nettó, Kjörbúðina, Krambúðina, Samkaup Strax, Seljakjör og Sunnubúðina. Gunnar hefur starfað á smásölumarkaði í 15 ár og situr í stjórn Háskólans á Bifröst.
Ég hef mikinn áhuga á að koma að starfi SVÞ og beita mér fyrir fjórum megin þáttum
Auka veg og virðingu verslunar í þjóðfélaginu
Frekara afnám verndartolla til hagsbóta fyrir neytendur
Tækniframfarir í íslenskri verslun
Aukin umhverfisvitund í íslenskri verslun
Gunnur Helgadóttir
Framkvæmdastjóri Vistor hf.
Gunnur Helgadóttir er framkvæmdastjóri Vistor hf. og hefur gegnt því starfi í 6 ár.
Vistor hf. er leiðandi fyrirtæki á sviði markaðssetningar og sölu á lyfjum og heilsuvörum. Velta fyrirtækisins árið 2017 var um 8,5 milljarðar króna og eru starfsmenn um 60 talsins.
Ég býð mig fram í stjórn SVÞ og tel að reynsla mín nýtist vel við stefnumótun til framtíðar. Stefnumótun sem tekst á við þær áskoranir og öru breytingar sem verslun og þjónusta standa frammi fyrir í nútíma umhverfi.
Jón Ólafur Halldórsson
Forstjóri Olíuverzlunar Íslands hf.
Hefur starfað hjá Olíuverzlun Íslands hf (Olís) undanfarin 23 ár og sem forstjóri félagsins frá 2014.
Hef víðtæka reynslu af stjórnunarstörfum og stefnumörkun og ég tel að þessi reynsla komi að góðum notum fyrir SVÞ. Legg áherslu á að standa vörð um íslenska verslun og þjónustu til framtíðar og að þessi mikilvæga grein atvinnulífsins búi við heilbrigt samkeppnisumhverfi og fái að þróast í takt við þá alþjóðlegu samkeppni sem hér orðin að veruleika.
Kjartan Örn Sigurðsson
Framkvæmdastjóri Verslanagreiningar ehf.
Kjartan Örn Sigurðsson er framkvæmdastjóri Verslanagreiningar ehf. sem hefur starfað með mörgum af stærstu verslunar- og þjónustufyrirtækjum landsins. Kjartan Örn hefur haldgóða reynslu af stjórnun og rekstri fyrirtækja á smásölumarkaði á Íslandi og Bretlandi síðustu 18 ár.
Ég hef áhuga á áframhaldandi setu í stjórn SVÞ með það að markmiði að efla vörumerkið íslensk verslun, samstarf aðila á markaði og vera rödd kaupmannsins á horninu. Ég vil sjá nýja námsbraut um kaupmennsku verða að veruleika fyrir lok árs 2018 með það að markmiði að auka fagmennsku í greininni og um leið auka jákvætt viðhorf og samkeppnishæfni í verslun á Íslandi.