Úr hagsmunagæslunni

Um þessar mundir hefur eldsneytisverð verið í umræðunni í tengslum við róttækar skattabreytingar um áramót. Í því samhengi hafa fallið ýmis orð, m.a. í þá átteldsneytisverð hér á landi hafi ekki þróast í samræmi við breytingar á heimsmarkaðsverði. Ekki er alltaf ljóst hvað átt er við þegar rætt er um heimsmarkaðsverð eldsneytis en t.d. hefur verið litið til heimsmarkaðsverðs á hráolíu, afhendingarverðs bensíns í New York höfn og heimsmarkaðsverð bensíns á Mið-Evrópumarkaði.

Þegar rætt er um heimsmarkaðsverð er t.d. hætt við að einhverjir líti svo á að það bensín sem er selt á Íslandi komi frá höfnum New York . Ef við skoðum hins vegar upplýsingar á vef Hagstofu Íslands sjáum við að tæp 99% alls blýlauss bensíns sem var flutt til Íslands frá upphafi árs 2023 var upprunnið í Noregi. Það bensín sem hér er selt á dælu er því líkast til ekki í raunkoma af heimsmarkaði heldur Noregsmarkaði. Af þeim sökum er eðlilegtvelta fyrir sér hvort verðþróun á innfluttu bensíni sem kemur hingað af Noregsmarkaði sama og verðþróun á heimsmarkaði.

Þróun heimsmarkaðsverðs á olíu á Íslandi
  • Facebook
  • Twitter
  • Gmail
  • LinkedIn

Heimild: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands og U.S. Energy Information Administration

Eldsneyti á Íslandi kemur ekki frá New York – heldur frá Noregi

Líkt og sjá á meðfylgjandi mynd hefur heimsmarkaðsverð í New York höfn umreiknað í íslenskar krónur sveiflast töluvert milli mánaða og það sama á við um innflutningsverð á bensíni sem er innflutt frá Noregi. Þótt verðbreytingarnar fylgi ekki alveg sömu sveiflum virðist þónokkur fylgni á milli þeirra á köflum ef innflutningsverð er tafið um mánuð sem kannendurspegla tafir vegna flutningsog afhendingartíma.

Þegar árið 2025 er skoðað sérstaklega virðist sambandið á milli þróunar á heimsmarkaðsverði og innflutningsverðs á bensíni sem er flutt inn frá Noregi vera veikara enjafnaði á tímabilinu 2023–2024. Í október hafði heimsmarkaðsverð tilmynda lækkað um 23% frá ársbyrjun á meðan innflutningsverð á bensíni frá Noregi hafði lækkað um 9%. Þetta misræmi kannskýrasthluta til af töf vegna flutningsog afhendingartíma á eldsneyti til Íslands en líkt og sjá á myndinni er áfram töluverður munur milli heimsmarkaðsverðs og innflutningsverðs með mánaðartímatöf. Það bendir til þessfleiri þættir en þróun heimsmarkaðsverðs hafi áhrif á innflutningsverð á bensíni frá Noregi.

  • Facebook
  • Twitter
  • Gmail
  • LinkedIn

Heimild: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands og U.S. Energy Information Administration

Niðurstaða: Heimsmarkaðsverð er ekki nægjanlegt viðmið

Kjarninn í þessu er heimsmarkaðsverð við New York höfn er ekki fullkomið viðmið tilleggja mat á verðþróun bensíns á Íslandi. Þótt innflutningsverð á bensíni, sem hefur bein áhrif á verðmyndun innanlands, hreyfist oft í takt við heimsmarkaðsverð líkt og fjallað er um hérframan er sambandið þar á milli misríkt og virðist hafa verið veikara árið 2025 en árin á undan