Aðalfundur Samtaka heilbrigðisfyrirtækja var haldinn 30. mars s.l. en samtökin starfa sem kunnugt er undir hatti SVÞ. Gestur fundarins var Nichole Leigh Mosty, formaður velferðarnefndarnefndar Alþingis og flutti hún hreinskilið ávarp um stefnu ríkistjórnarinnar í málefnum heilbrigðiskerfisins. Formaður samtakanna, Stefán Einar Matthíasson flutti skýrslu stjórnar fyrir liðið starfsár og drap þar á því helsta sem samtökin hafa unnið að. Stefán var endurkjörinn formaður. Aðrir í stjórn eru Jón Gauti Jónsson, Knútur Óskarsson, Guðmundur Örn Guðmundsson og Gunnlaugur Sigurjónsson. Varamenn með seturétt og tillögurétt á stjórnarfundum eru þeir Kristján Guðmundsson og Kristján Zophoníasson.
Flokkar
Nýlegt
- Eftirlitskröfur vegna peningaþvættis áfram gagnrýndar – SVÞ o.fl.atvinnugreinasamtök kallar eftir viðbrögðum ráðherra
- Erlend netverslun jókst um 15% árið 2025
- Sjálfstæðir skólar sýna sterkan árangur í nýrri skýrslu ráðherra
- Ísland hefur gengið lengra en önnur ríki í peningaþvættisreglum
- Umsögn um aðgerðaráætlun í málefnum offitu
Fylgstu með!
Besta leiðin til þess er að vera skráð(ur) á póstlistann!