Um 114 nýir bílar bætast vikulega við umferðina
Á hverri viku bætast um 114 nýir fólksbílar við umferðina á Íslandi samkvæmt gögnum Bílgreinasambandsins (BGS). Þetta kom fram í viðtali við Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóra SVÞ og Bílgreinasambandsins, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni 28. apríl sl. – hlustaðu á viðtalið HÉR!
Í viðtalinu fór Benedikt yfir þróun nýskráninga og benti á að þrátt fyrir að tölurnar sýni stöðugan straum nýrra bíla inn á markaðinn þurfi að setja þær í samhengi. Þessi þróun tengist beint þeim tölum sem BGS birtir mánaðarlega.
Í viðtalinu lagði Benedikt áherslu á að mikilvægt væri að lesa í þessar tölur með varúð. Nýskráningar endurspegla ekki endilega stöðu markaðarins á hverjum tíma, þar sem innflutningur og skráningar geta færst til í tíma eftir regluverki og skattaumhverfi.
_________________________
Á síðustu fimm árum hafa að meðaltali verið nýskráðir um 17 þúsund fólksbílar á ári hér á landi á meðan afskráningar hafa verið um 9 þúsund að meðaltali.
Það þýðir að nettófjölgun fólksbíla nemi um 8 þúsund fólksbílum á ári eða um 114 fólksbílum í viku á landsvísu. Vert er þó að hafa í huga að hér er ekki tekið tillit til þess hvort bílarnir séu í raun í umferð né hvar þeir eru nýttir. Þróunin síðustu ár sýnir að bílaflotinn heldur áfram að stækka þrátt fyrir sveiflur milli einstakra ára.

