Nýjustu tölur frá Rannsóknasetri verslunarinnar (RSV) sýna að erlend netverslun Íslendinga jókst verulega í desember og á árinu 2025 í heild.
Í desember nam velta vegna kaupa einstaklinga í erlendri netverslun rúmum 4,2 milljörðum króna, sem er hæsta mánaðarlega tala sem mælst hefur frá upphafi mælinga. Það er jafnframt rúmlega 20% aukning frá desember 2024.
Á árinu 2025 nam erlend netverslun alls 34,5 milljörðum króna, sem jafngildir 15% aukningu frá fyrra ári. Samkvæmt RSV eru enn engin merki um að þessi þróun sé að ná hámarki og bendir því margt til að umfang erlendrar netverslunar muni halda áfram að vaxa á næstu árum.
RSV hefur birt ítarlegri gögn um þróunina á innri vef sínum veltan.is, þar sem meðal annars er hægt að skoða veltu í erlendri netverslun eftir vöruflokkum.
Á næstu vikum mun RSV jafnframt gefa út skýrsluna „Erlend netverslun 2025“, þar sem nánar verður rýnt í þróunina og hvaða vörur Íslendingar keyptu helst frá erlendum netverslunum á liðnu ári.