Ný stjórn og aukin breidd á aðalfundi Sjálfstæðra skóla
Aðalfundur Sjálfstæðra skóla (SSK) var haldinn 16. apríl síðastliðinn. Fundurinn var vel sóttur og dagskráin fjölbreytt og áhugaverð.
Alma Guðmundsdóttir, formaður stjórnar, fór yfir helstu verkefni og starfsemi liðins árs. Þá voru lagðar fram og samþykktar breytingar á samþykktum samtakanna.
Einnig urðu breytingar á stjórn. Kristrún Birgisdóttir lét af störfum sem varaformaður og í hennar stað var kjörin Sigríður Dröfn Ámundadóttir. Þá dró Sigríður Stephensen sig úr stjórn eftir farsælt og langt starf og tekur Kristján Ómar Björnsson sæti hennar. Ólafur Þór Kristjánsson er nýr varamaður í stjórn.
Samtökin þakka Kristrúnu og Sigríði Stephensen innilega fyrir þeirra ómetanlega framlag til starfs SSK og bjóða nýja stjórnarmenn hjartanlega velkomna til starfa.
Á fundinum kynntu nýir félagsmenn sig, Aðalþing og Hamingjuhöllin og var mjög áhugavert að hlusta á kynningar þeirra. Samtökin bjóða þau hjartanlega velkomin í hópinn. Þá flutti Bergur Ebbi áhugaverðan fyrirlestur sem vakti lukku.
Fundinum lauk með léttum veitingum, búbblum og góðum samræðum.
________
