SVÞ vara við heimildum til verðstýringar á eldsneyti

SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu gera alvarlegar athugasemdir við frumvarp um lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti, einkum mögulega aðkomu ráðherra að verðstýringu og breytt hlutverk Samkeppniseftirlitsins. Þetta kemur fram í umfjöllun Morgunblaðsins í dag, 24.04.2026.

Í greininni er haft eftir Benedikti S. Benediktssyni, framkvæmdastjóra SVÞ, að frumvarpið feli ekki aðeins í sér lækkun virðisaukaskatts úr 24% í 11%, heldur einnig sérstakt viðbótareftirlit með því að lækkunin skili sér til neytenda. Samkvæmt frumvarpinu gæti atvinnuvegaráðherra gripið til aðgerða, þar á meðal beinnar verðstýringar, ef talið er að lækkun skatthlutfalls skili sér ekki út í verðlag.

SVÞ benda á að það eftirlit sem Samkeppniseftirlitinu er ætlað að sinna samkvæmt frumvarpinu sé í eðli sínu sambærilegt verkefni og þegar er á hendi ríkisskattstjóra, þ.e. að tryggja að rétt skatthlutfall sé lagt á vöru. Að mati samtakanna er því óljóst hvers vegna fá Samkeppniseftirlitinu sama hlutverk og þannig tvöfalda eftirlit.

Í umfjöllun Morgunblaðsins kemur jafnframt fram að SVÞ telji heimild ráðherra til að stýra eldsneytisverði geta farið gegn stjórnarskrárbundnum reglum, meðal annars um meðalhóf. Bent er á að íþyngjandi ákvarðanir af þessu tagi þurfi skýra lagastoð og afmörkuð viðmið, sem ekki liggi fyrir með fullnægjandi hætti í frumvarpinu.

Þá vekja SVÞ athygli á því að Samkeppniseftirlitið hafi safnað gögnum um verðþróun á eldsneytismarkaði frá því í desember án þess að niðurstöður liggi fyrir.

Einnig er vísað til þess í greininni að frumvarpið geti í framkvæmd falið í sér verðþak eða tímabundið frávik frá markaðsverðmyndun. Slíkt samræmist illa markmiði frumvarpsins að mati SVÞ.

Áhrif á fyrirtæki og markað

Fyrir fyrirtæki á eldsneytismarkaði og í tengdri starfsemi felur frumvarpið í sér aukna byrði að tilefnislausu. Möguleg bein aðkoma stjórnvalda að verðlagningu getur haft áhrif á samkeppni og getu fyrirtækja til rekstrar.

Skýr verkaskipting stjórnvalda og reglubyrði í samræmi við tilefni eru lykilatriði fyrir fyrirtæki sem starfa á samkeppnismarkaði. Óljósar heimildir og tvíverknaður í eftirliti og viðurlögum auka kostnað og draga úr skilvirkni.

Niðurstaða

SVÞ leggja áherslu á að markmið um að lækkun skatta skili sér til neytenda er mikilvægt og eðlilegt. Hins vegar þarf útfærsla eftirlits að vera við hæfi og samræmast lögum. Núverandi frumvarp vekur upp spurningar um hvort hið opinbera geri sér grein fyrir samspili umfangs eftirlits og rekstrarkostnaðar. Að tvær stofnanir sinni í grundvallaratriðum sama eftirlitinu, Skatturinn og Samkeppniseftirlitið. getur ekki verið skynsamlegt.

______

  • Facebook
  • Twitter
  • Gmail
  • LinkedIn