Starfaprófílar Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins lýsa verslunarstörfum á fjórum hæfniþrepum. Þeir gera verkefni, ábyrgð og hæfnikröfur sýnilegri og geta nýst fyrirtækjum við ráðningar, þjálfun og starfsþróun.
Í nýlegri grein í VR blaðinu fjalla sérfræðingar Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) um hæfnigreiningu verslunarstarfa og hvernig skýrari viðmið geta gagnast bæði starfsfólki og atvinnurekendum.
Starfaprófílarnir lýsa stíganda frá grunnverkefnum undir leiðsögn til heildarábyrgðar á rekstri verslunar. Greiningin tekur mið af íslenska hæfnirammanum um menntun og dregur fram þá hæfni sem þarf til að sinna ólíkum verkefnum.
Fjögur þrep með vaxandi ábyrgð
- Þrep 1: Einföld og afmörkuð verkefni undir leiðsögn, svo sem áfylling, vörufrágangur og einföld afgreiðsla.
- Þrep 2: Almenn verslunarstörf með áherslu á þjónustu, sölu, vöruráðgjöf og sjálfstæða framkvæmd verkefna.
- Þrep 3: Ábyrgð á daglegum rekstri afmarkaðs svæðis, þjónustu og skipulagi verkefna.
- Þrep 4: Heildarábyrgð á daglegum rekstri verslunar, þjónustu og stjórnun.
Hagnýt viðmið fyrir fyrirtæki og starfsfólk
Fyrirtæki geta nýtt starfaprófílana við að skýra starfslýsingar, skipuleggja móttöku nýs starfsfólks og móta þjálfun. Þeir skapa jafnframt sameiginlegan grundvöll fyrir samtal stjórnenda og starfsfólks um hæfni, ábyrgð og næstu skref í starfi.
Fyrir starfsfólk geta viðmiðin gert eigin þekkingu og reynslu sýnilegri og hjálpað til við að greina tækifæri til frekari þjálfunar. Starfaprófílar eru einnig grunnur að þróun náms og raunfærnimats.
SVÞ hvetja stjórnendur og þau sem sinna mannauðs- og fræðslumálum í verslun til að kynna sér efnið og möguleika þess í daglegu starfi.
Skoða starfaprófílana á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins