SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu gera athugasemdir við frumvarp til breytinga á lögum um Byggðastofnun og telja að skýra þurfi sjálfstæði stofnunarinnar í póstmálum, vald stjórnar og ráðstöfun fjármuna sem ætlaðir eru til verkefna á sviði póstþjónustu.
Í umsögn SVÞ til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um 156. þingmál, sem varðar breytingar á lögum um Byggðastofnun, taka samtökin undir markmið frumvarpsins um að efla sjálfstæði stofnunarinnar í póstmálum. Samtökin telja þó að fyrirhugaðar breytingar gangi ekki nægilega langt til að tryggja sjálfstæði og fjárhagslegt gagnsæi.
Sjálfstæðið þarf að ná til allra verkefna í póstmálum
SVÞ benda á að sjálfstæðisákvæði frumvarpsins taki samkvæmt orðalagi sínu aðeins til eftirlits með póstþjónustu, þótt verkefni Byggðastofnunar samkvæmt lögum um póstþjónustu séu víðtækari.
Þá telja samtökin óljóst hvernig fyrirhugað sjálfstæði póstmála samrýmist áframhaldandi valdi stjórnar Byggðastofnunar yfir rekstrar- og starfsáætlun stofnunarinnar og samþykkt ársreiknings.
Tryggja þarf gagnsæi um ráðstöfun fjármuna
Póstrekendur greiða árlegt rekstrargjald sem nemur 0,4% af bókfærðri veltu samkvæmt lögum um póstþjónustu. SVÞ telja mikilvægt að tryggt sé með skýrum hætti að fjárveitingum vegna póstmála sé ráðstafað til þeirra verkefna sem þeim er ætlað að fjármagna.
Samtökin leggja því til reikningslegan og fjárhagslegan aðskilnað póstmála frá annarri starfsemi Byggðastofnunar, ásamt sérstakri upplýsingagjöf með ársreikningi.
SVÞ leggja áherslu á að markmið frumvarpsins um sjálfstæði póstmála náist ekki að fullu nema sjálfstæðið taki til allra lögbundinna verkefna á sviði póstþjónustu og ábyrgð á fjármunum, starfsfólki og starfsáætlun sé skýrt afmörkuð.
Umsögn SVÞ um frumvarp til breytinga á lögum um Byggðastofnun, 156. mál, lögð fram 29. október 2026.