SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu, Samtök sjálfstæðra skóla (SSK), Samtök atvinnulífsins (SA) og Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) kalla eftir skýrari tengingu menntakerfisins við hæfniþarfir atvinnulífsins í þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030.  

Í sameiginlegri umsögn samtakanna til mennta- og barnamálaráðuneytisins, dags. 28. október 2026, er áherslum stjórnvalda á grunnfærni, gæði kennslu, raunvísindi og tækni fagnað. Samtökin telja þó nauðsynlegt að skerpa á markmiðum og framkvæmd aðgerðaáætlunarinnar, tryggja fjölbreyttara námsframboð og efla formlegt samstarf menntakerfisins og atvinnulífsins.

Grunnfærni er forsenda áframhaldandi náms og atvinnuþátttöku

Samtökin styðja aukna áherslu á lesskilning, íslensku og stærðfræði en telja markmið um að 65% nemenda nái grunnhæfni í lesskilningi árið 2030 ekki nægilega metnaðarfullt.

Slíkt markmið felur í sér að rúmur þriðjungur nemenda verði enn undir viðmiðum um grunnhæfni. Samtökin kalla því eftir skýrari ábyrgð, árlegum mælanlegum markmiðum og markvissum aðgerðum til að tryggja að fleiri nemendur ljúki grunnskóla með þá færni sem þarf til áframhaldandi náms og starfa.

Jafnframt leggja samtökin til að fjármálalæsi verði skyldufag og að sjálfstæðir útgefendur, höfundar og fyrirtæki hafi jafnt og gagnsætt aðgengi að opinberri fjármögnun námsgagnagerðar.

Fleiri námspláss og skýrari leiðir til starfsréttinda

Samtökin leggja áherslu á að iðn- og starfsnám fái aukið vægi í menntastefnunni. Þau kalla eftir tölusettum markmiðum um fjölgun iðnnámsplássa frá árinu 2027 og að tryggt verði nægilegt framboð kennara, búnaðar og vinnustaðanáms.

Einnig er mikilvægt að þróa stuttar, hagnýtar námsleiðir í samstarfi við atvinnulífið þannig að nemendur geti aflað sér viðurkenndrar hæfni sem nýtist á vinnumarkaði og byggt síðar ofan á námið.

Samtökin leggja jafnframt áherslu á að raunfærnimat leiði til raunverulegra tækifæra til námsloka. Einstaklingar sem fá fyrri reynslu og hæfni metna þurfa að geta lokið þeim námsáföngum sem eftir standa, meðal annars samhliða starfi.

Jafnræði skóla óháð rekstrarformi

Í umsögninni er sérstaklega fjallað um mikilvægi þess að sjálfstæðir skólar njóti jafnræðis við opinbera skóla.

Samtökin leggja áherslu á að fjármögnun, sérfræðiþjónusta og stuðningur fylgi nemendum óháð því hvaða skóla þeir sækja. Einnig þurfi að tryggja jafnt aðgengi kennara að starfsþróun, námsgögnum og þátttöku í námsmati og landsmælingum.

Þá er kallað eftir því að sjálfstæðir skólar verði skilgreindir sem samstarfsaðilar við framkvæmd aðgerðaáætlunarinnar og að valfrelsi foreldra og nemenda verði tryggt.

Atvinnulífið þarf að koma að mótun og framkvæmd menntastefnunnar

Samtökin telja mikilvægt að námsframboð, náms- og starfsráðgjöf og þróun nýrra námsleiða byggist á áreiðanlegum upplýsingum um núverandi og framtíðarhæfniþarfir vinnumarkaðarins.

Þau kalla eftir markvissri þróun færnispáa á Íslandi og formlegri aðkomu atvinnulífsins að verkefnum sem snúa meðal annars að starfsnámi, raunvísindum, tækni og gervigreind.

Meginboðskapur umsagnarinnar er að árangursrík menntastefna þurfi að byggjast á sterkri grunnfærni, fjölbreyttum námstækifærum, mælanlegum árangri og virku samstarfi menntakerfisins og atvinnulífsins.

Umsögn um drög að tillögu til þingsályktunar um þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030, mál S-210/2026 í samráðsgátt stjórnvalda, dags. 28. október 2026.

SMELLTU HÉR FYRIR UMSÖGNINA