SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu hafa skilað umsögn á umsagnagátt framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um fyrirhugaðar breytingar á viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, ETS. Samtökin styðja markmið kerfisins um minni losun en leggja áherslu á að framkvæmd þess taki mið af fjarlægð Íslands frá meginlandi Evrópu og erfiðum siglingaskilyrðum á Norður-Atlantshafi. Greiningar DNV sýna að þessir þættir valda verulega meiri orkunotkun og kostnaði á siglingaleiðum til og frá Íslandi en á dæmigerðum samanburðarleiðum innan Evrópu.
Í umsögn SVÞ er bent á að verði tillögur um 50% skilaskyldu losunarheimilda á tilteknum svæðum innan ESB hluti af ETS tilskipuninni, beri að tryggja að siglingar til og frá Íslandi falli þar undir. Þá benda samtökin á að skoðuð verði mælingamiðuð aðlögun vegna sérstaklega erfiðra aðstæðna á sjó. Samtökin benda enn fremur á að endurskoðun slíkra aðlagana fari fram þegar raunhæfar tæknilausnir liggja fyrir, fremur en eftir fyrirfram ákveðnum dagsetningum.
Með þeim hætti telja samtökin að nálgast megi markmiðið um að jafna samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs.
Sjá umsögn SVÞ hér → ETS Umsögn ESB viðskiptakerfi losunarheimildir ETS