FRÉTTATILKYNNING
Breytingar á stjórn og starfsmannahópi SVÞ

Jónas Kári Eiríksson hefur kjörinn varaformaður stjórnar SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu og tekið við stjórnarformennsku í Vinnudeilusjóði. Elín Tinna Logadóttir hefur tekið sæti í stjórn SVÞ.  Örn Arnarson hefur verið ráðinn verkefna- og tengslastjóri samtakanna.

Elín Tinna Logadóttir, framkvæmdastjóri 66°Norður á Íslandi, hefur tekið sæti í stjórn SVÞ í stað Eddu Rutar Björnsdóttur. Elín Tinna hefur fjölbreytta reynslu af verslunarrekstri. Hún starfaði hjá 66°Norður í fimmtán ár áður en hún tók við sem framkvæmdastjóri Útilífs. Í september 2025 sneri hún aftur til 66°Norður sem framkvæmdastjóri á Íslandi.

Jónas Kári Eiríksson, framkvæmdastjóri vörustýringar hjá Inchcape á Íslandi, hefur verið kjörinn varaformaður stjórnar SVÞ og tekið við stjórnarformennsku í Vinnudeilusjóði. Jónas Kári hefur setið í stjórn SVÞ frá 2025, átt sæti í stjórn Bílgreinasambandsins um nokkurra ára skeið og kemur að starfi samtakanna með reynslu á sviði verslunar og þjónustu.

Örn Arnarson hefur verið ráðinn verkefna- og tengslastjóri SVÞ og hefur störf hinn 1. október næstkomandi. Örn hefur starfað sem blaðamaður og ritstjórnarfulltrúi á Viðskiptablaðinu, hefur þar fengist við umfjöllun um íslenskt viðskipta- og atvinnulíf, og verið tíður gestur í hlaðvarpsþáttum. Örn hefur áður starfað á sviði hagsmunagæslu sem starfsmaður Samtaka fjármálafyrirtækja.

SVÞ þakka Eddu Rut kærlega fyrir mikilvægt framlag hennar til starfs samtakanna, bjóða Elínu Tinnu og Örn velkomin til starfa fyrir samtökin og óska Jónasi Kára alls hins besta í nýjum hlutverkum.

FRÉTTATILKYNNING – Breytingar í stjórn og starfsmannahópi SVÞ