Sértilboð á Google leitarvélabestunarþjónustu

Sértilboð á Google leitarvélabestunarþjónustu

Félagsmenn SVÞ í Datera bjóða Google leitarvélapakka á sérkjörum fyrir félagsmenn í SAF, SI og SVÞ.

Um er að ræða uppsetningu og utanumhald herferðar ásamt birtingakostnaði í einn mánuð, auk ráðlegginga ef breytinga er þörf á vef til að tryggja ódýrari og betri niðurstöður í leit. Datera tryggir að fyrirtækið/netverslunin sé að birtast ofarlega í leitarniðurstöðum þegar notendur leita að viðkomandi fyrirtæki og helstu vörum/þjónustu sem eru í boði.

Pakki A: 120.000 kr án vsk.
Inniheldur birtingarkostnað í mánuð, 6 leitarorð og 10 mismunandi auglýsingaskilaboð

Pakki B: 180.000 kr án vsk.
Inniheldur birtingarkostnað í mánuð, 10 leitarorð og 20 mismunandi auglýsingaskilaboð

Ath: að fjórum viknum liðnum, þegar herferð lýkur, er auðvelt að framlengja henni og er þá einungis greitt fyrir birtingakostnað hjá Google.

Tilboðið gildir út maí 2020.

Hafið samband við Hreiðar Þór Jónsson hjá Datera: hreidar(hjá)datera.is, S: 788 0707

Sértilboð til félagsmanna: Vefverslun á 72 tímum

Sértilboð til félagsmanna: Vefverslun á 72 tímum

Fáðu öfluga vefverslun uppsetta á 72 tímum með sérfræðingunum í Koikoi

Á tímum sem þessum er mikilvægt að geta boðið upp á þjónustu á netinu og því margir sem eru í kapphlaupi við tímann um að ná því markmiði. Það getur þó verið flókið að koma upp vefverslun á einungis nokkrum dögum sem virkar vel og er auðveld í notkun.

Koikoi sérhæfa sig í vefverslunum og stafrænni markaðssetningu. Í ljósi aðstæðna býður Koikoi upp á hraðbraut fyrir fyrirtæki sem eru ekki í þeirri stöðu að vera með nógu öfluga sölusíðu á netinu eða þurfa nýja vefverslun. Fyrirtæki sem vilja hefja og klára þá vegferð sem fyrst.

Með aðferðafræði Koikoi og reynslu geta þau sett upp vefverslun á 72 tímum og komið fyrirtækjum fljótt af stað til að hefja sölu á vörum og þjónustu á netinu.

30% afsláttur fyrir félagsmenn, eða 629.000 kr í stað 899.000 (verð án vsk) – gildir til 31. maí 2020

 

>> SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ FREKARI UPPLÝSINGAR OG NÝTA ÞÉR TILBOÐIÐ