NÚ fagnaði 10 ára afmæli sínu sunnudaginn 23. ágúst og af því tilefni flutti Alma Guðmundsdóttir, formaður SSK, kveðju fyrir hönd samtakanna.

Á þeim tíu árum sem liðin eru frá stofnun NÚ hefur skólinn sýnt með skýrum hætti hversu mikilvægur fjölbreytileiki í skólastarfi er. Frá upphafi hefur NÚ farið sínar eigin leiðir og byggt upp skólastarf þar sem metnaður, hreyfing og hlýja fara saman og þarfir og velferð nemenda eru í fyrirrúmi.

SSK óskar NÚ, starfsfólki, nemendum og öllum þeim sem komið hafa að uppbyggingu og starfi skólans innilega til hamingju með þennan merka áfanga. Um leið þökkum við NÚ fyrir mikilvægt framlag til fjölbreytts og öflugs skólasamfélags á Íslandi.

Innilegar hamingjuóskir með 10 ára afmælið, NÚ. Við hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi þróun og farsælu starfi skólans um ókomin ár.

  • Facebook
  • Twitter
  • Gmail
  • LinkedIn

 

  • Facebook
  • Twitter
  • Gmail
  • LinkedIn