Aðalfundur SVÞ verður haldinn fimmtudaginn 14. mars nk.
Að venju verður haldin vegleg ráðstefna í tengslum við aðalfundinn síðar um daginn. Ráðstefnan fer fram á Hilton Reykjavik Nordica. Aðalfyrirlesari verður Greg Williams, aðalritstjóri WIRED Magazine.
Taktu daginn frá!
Um Greg Williams:
- Sérfræðingur í umbreytingaþróun og fyrstur til að vita hvað kemur næst
- Getur sett fram upplýsingar um flóknar breytingar á skemmtilegan og skiljanlegan hátt sem nær til áheyrenda
- Ögrar áheyrendum og fær þau til að endurhugsa viðskiptamódel til að nýta sem best tæknina sem er að hrista upp í heiminum
Greg Williams er virtur sérfræðingur þegar kemur að tæknibreytingum og hvernig þær hafa áhrif á viðskiptalífið og samfélög okkar í heild. Í starfi sínu sem aðalritstjóri tímaritsins WIRED hittir Greg frumkvöðla, hugsuði, vísindafólk, athafnafólk og skapandi fólk sem er að breyta heiminum og skrifar um fjölmörg málefni á borð við nýsköpun, tækni, viðskipti, sköpun og hugmyndir.
Auk þess að stýra WIRED hefur Greg skrifað fyrir miðla á borð við The Guardian, Obeserver, Arena, The Face, Details og Newsweek. Hann er einnig höfundur fimm skáldsagna undir nafninu Gregory Lee. Ritgerð hans um taugahagfræði (e. neuroeconomics) birtist nýlega í bókinni ‘Connecting Minds, Creating the Future’ ásamt aðilum á borð við Hans Rosling og Bill Gates.
Sem ráðgjafi hefur Greg unnið með fyrirtækjum í orkugeiranum, samskiptum, fjármálum, tísku, tækni og smásölu. Meðal verkefna hans hjá WIRED er að ritstýra árlegri útgáfu blaðsins um það sem búast má við á komandi ári, The WIRED World.
Greg hefur talað víða um heim, m.a. hjá Strelka Institue í Moskvu, Instite of Practicitioners in Advertising í London og hjá Oxford háskóla. Hann hefur stýrt pallborðsumræðum með stjórnendum FTSE 100 og Fortune 500 fyrirtækja m.a. á Advertising Week Europe og fyrir LinkedIn á Cannes Lions.
Greg hefur einstaka hæfileika til að flétta saman sagnahæfileika sína og djúpa þekkingu á framtíð tækni og viðskipta. Saman gerir þetta honum kleift að setja flóknar hugmyndir fram á skemmtilegan og aðgengilegan hátt og undirbúa áheyrendur undir það sem koma skal.
Frekari upplýsingar og skráning síðar. Fylgstu vel með!