Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Umhverfisfyrirtækis ársins 2026.
SVÞ hvetur félagsfólk sitt til að vekja athygli á fyrirtækjum sem náð hafa árangri í umhverfis- og loftslagsmálum. Hægt er að senda inn tilnefningar til og með 10. október.
Verðlaunin eru veitt fyrirtæki sem sýnir í verki hvernig markvissar aðgerðir, nýsköpun og ábyrg stjórnun skila árangri. Í ár er sérstaklega horft til ábyrgrar ákvarðanatöku í umhverfismálum. Aðeins aðildarfyrirtæki SA og aðildarsamtök þeirra koma til greina.
Tilnefningu þarf að fylgja rökstuðningur um hvernig fyrirtækið uppfyllir viðmið verðlaunanna.
Meðal annars skal gera grein fyrir:
-
innleiddu umhverfisstjórnunarkerfi
-
sjálfbærri nýtingu aðfanga
-
aðgerðum sem ganga lengra en lög og reglur krefjast
-
aðgerðaáætlun með tölulegum og tímasettum markmiðum
-
opinberri sjálfbærnistefnu, birtum markmiðum og árangri
-
áhrifum umhverfismála á ákvarðanir fyrirtækisins og mati þess á tengdri áhættu og tækifærum
Ef fylgigögn eru lögð fram er óskað eftir þeim í einni skrá.
Sendu inn tilnefningu til Umhverfisfyrirtækis ársins 2026
Verðlaunin verða afhent á Umhverfisdegi atvinnulífsins, sem haldinn verður í ellefta sinn þriðjudaginn 27. október undir yfirskriftinni Sérstaða Íslands.
Fundurinn fer fram á Hótel Reykjavík Grand kl. 13.00–15.15 og verður skráning auglýst fljótlega.
Umhverfisdagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SAF, Samorku, SFF, SFS og SVÞ.