UMHVERFIS-, SJÁLFBÆRNI- OG LOFTSLAGSMÁL

Í umhverfisstefnu SVÞ kemur fram að meginmarkmið samtakanna á þessu sviði er að vera aðildarfyrirtækjum okkar og atvinnulífinu öllu góð fyrirmynd í umhverfismálum og sjálfbærni, og að leiðbeina, fræða og hvetja og styðja við aðildarfyrirtæki í málaflokknum, enda sé ekki síst skýr ávinningur af því fyrir aðildarfyrirtæki í formi betri afkomu, aukinnar starfsánægju starfsfólks og bættrar ímyndar.

Við hvetjum aðildarfyrirtæki og starfsmenn þeirra til að hafa umhverfismál að leiðarljósi í starfsemi sinni.

Á innra vefsvæði fyrir félagsmenn má finna ýmislegt gagnlegt efni til að koma fyrirtækinu þínu af stað á vegferð ykkar til sjálfbærni og ábyrgðar í umhverfismálum, kveikja hugmyndir og veita innblástur.

Við hvetjum félagsmenn til að deila með okkur efni og upplýsingum  sem geta nýst öðrum fyrirtækjum til að bæta sig í þessum málum og veita þeim innblástur með því að segja frá því sem þið eruð að gera!

Kíktu á hlekkina í hliðarstikunni og kynntu þér efnið sem þú finnur hér fyrir neðan!

Umhverfisdagur atvinnulífsins 5.október 2022

Umhverfisdagur atvinnulífsins 5.október 2022

Auðlind vex af auðlind Umhverfisdagur atvinnulífsins 2022 verður haldinn miðvikudaginn 5. október í Hörpu Norðurljósum kl. 09:00-10.30 undir yfirskriftinni Auðlind vex af auðlind. Húsið opnar kl. 08:30 með morgunhressingu. Dagurinn er árviss viðburður og að honum...

Lesa meira
Umhverfisdagur Samtaka atvinnulífsins 2022

Umhverfisdagur Samtaka atvinnulífsins 2022

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2022 verður haldinn miðvikudaginn 5. október í Hörpu Norðurljósum kl. 09:00-11.00. Húsið opnar kl. 08:30 með morgunhressingu. Dagurinn er árviss viðburður og að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök...

Lesa meira