SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu hafa skilað umsögn um áform um innleiðingu markaðseftirlitsreglugerðar ESB. Samtökin fagna því að ekki sé fyrirhugað að ganga lengra en lágmarkskröfur reglugerðarinnar segja til um og leggja áherslu á að sú nálgun skili sér í útfærslu laganna.

Í umsögninni kalla SVÞ eftir þarfagreiningu áður en heimild til innheimtu eftirlitskostnaðar hjá fyrirtækjum er nýtt, fyrirsjáanlegum og hóflegum viðurlögum og skýrum skilyrðum fyrir beitingu valdheimilda. Eftirlitið verði áhættumiðað svo fyrirtæki sem almennt fylgja reglum sæti ekki óþarfa eftirliti eða kostnaði. Þá leggja samtökin áherslu á að svigrúm reglugerðarinnar verði greint áður en frumvarp er lagt fram, til að koma í veg fyrir séríslenskar kröfur umfram það sem innleiðingin krefst.

Sjá umsögn SVÞ hér -> 17092026 SVÞ – ums. samr 165-2026. áform Markaðseftirlit (1)