Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ sagði hljóðið í kaupmönnum ljómandi gott þegar hann var spurður í fréttum RÚV í gærkvöldi. Hann sagði enga ástæðu til svartsýni í röðum kaupmanna. Aðspurður um helstu þætti sem hefðu áhrif á jólaverslun sagði Andrés „eins og staðan er hjá okkur í dag þá er nýbúið að gera kjarasamninga sem færir fólki aukinn kaupmátt, það er stöðugleiki framundan í þjóðfélaginu. Allar ytri ástæður eru þannig að það eru engar ástæður til að ætla annað en að jólaverslun fyrir þessi jól verði mjög öflug.“ Andrés segir verulega breytingu að verða á neyslumynstri og hegðun neytenda, bæði séu stórir alþjóðlegir verslunardagar afgerandi í verslun, Black Friday, Cyber Monday og fleiri dagar auk þess sem sífellt stærri hluti verslunar sé að færast á netið.
Flokkar
Nýlegt
- Af hverju breytist bensínverð ekki um leið og breytingar verða á heimsmarkaðsverði olíu?
- SVÞ og SI vilja frestun á kílómetragjaldinu
- Sprenging í erlendri netverslun: Byggingavörur upp um 50%
- Heimurinn verslar í sófanum – og traustið skiptir meira máli | McKinsey
- Aukum öryggi starfsfólks í verslun – SVÞ tryggir rödd atvinnurekenda
Fylgstu með!
Besta leiðin til þess er að vera skráð(ur) á póstlistann!