Apótek töpuðu 551 milljón króna á sölu lyfseðilsskyldra lyfja

Afkoma íslenskra apóteka af sölu lyfseðilsskyldra lyfja hefur versnað verulega undanfarin ár. Samkvæmt nýrri greiningu SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu nam rekstrartap fjögurra stórra lyfsölufyrirtækja af sölu lyfseðilsskyldra lyfja um 551 milljón króna árið 2025. Fyrirtækin standa samanlagt undir um 79% af sölu lyfseðilsskyldra lyfja hér á landi.

Fjallað er ítarlega um niðurstöður greiningarinnar í Viðskiptablaðinu –> HÉR.

Greining SVÞ sýnir að þrátt fyrir verulegan vöxt í veltu apóteka hefur afkoma þeirra versnað. Á árunum 2020 til 2025 jukust rekstrartekjur íslenskra apóteka um 77%, úr 29,4 milljörðum króna í 51,9 milljarða. Á sama tíma dróst rekstrarhagnaður saman um 15% og hagnaður eftir skatta minnkaði um 23%.

Þegar horft er sérstaklega til sölu lyfseðilsskyldra lyfja lækkaði framlegð fjögurra stærstu lyfsölufyrirtækjanna úr 27,6% árið 2023 í 25,1% árið 2025. Rekstrarhagnaður af þessum hluta starfseminnar, að teknu tilliti til afskrifta, var neikvæður bæði árin 2024 og 2025.

Álagning óbreytt þrátt fyrir hækkandi kostnað

Smásöluálagning lyfseðilsskyldra lyfja hefur verið óbreytt frá 1. október 2023 þrátt fyrir verulegar kostnaðarhækkanir í rekstri apóteka. Lyfjastofnun hefur hafnað beiðnum um hækkun álagningarinnar og beiðni um endurupptöku fyrri ákvörðunar.

Í greiningu SVÞ er bent á að við ákvarðanir um álagningu þurfi að taka mið af raunverulegri kostnaðarþróun apóteka og þeim breytingum sem orðið hafa á lyfjamarkaði. Meðal annars hefur notkun dýrari lyfja aukist, en hlutfallsleg framlegð af sölu þeirra er lægri þrátt fyrir að afgreiðsla þeirra geti kallað á umtalsverða vinnu.

„Við greiningarvinnuna rákum við okkur á sterkar vísbendingar um að íslensk apótek séu mun háðari sölu lyfseðilsskyldra lyfja en í samanburðarlöndunum. Verði á slíkum lyfjum er að ýmsu leyti stýrt af hinu opinbera, bæði hér og erlendis, en sé verðstýringunni ekki sinnt nægilega koma neikvæð áhrif hratt fram á Íslandi,“ segir Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ, í samtali við Viðskiptablaðið.

Aðgengi að lyfjum gæti verið í hættu

Í greiningunni er rekstrarþróun íslenskra apóteka einnig borin saman við þróunina í Svíþjóð og Noregi. Niðurstöðurnar sýna að kostnaður hefur þróast með mun óhagstæðari hætti hér á landi og þrengt að rekstrargrundvelli íslenskra apóteka.

SVÞ telja mikilvægt að stjórnvöld taki mið af þessari þróun við ákvarðanir um smásöluálagningu lyfja. Sjálfbær rekstur apóteka er forsenda þess að tryggja almenningi greiðan og öruggan aðgang að lyfjum um allt land.

Benedikt varar við því að óbreytt rekstrarumhverfi geti leitt til fækkunar apóteka, einkum þeirra minni og þeirra sem starfa utan stærstu verslunarkjarna.

„Að óbreyttu má spá því að apótekum fari með tíð og tíma að fækka og væntanlega muni minni apótek og apótek í úthverfum heltast fyrst úr lestinni. Það yrði óheillaþróun því traust aðgengi íbúa að lyfjum er eitt meginmarkmiða lyfjalaga,“ segir Benedikt.

Nánar er fjallað um niðurstöður greiningar SVÞ í Viðskiptablaðinu: Töpuðu hálfum milljarði á lyfseðilsskyldum lyfjum.