Reykjavík, 16. febrúar 2026

Til aðildarfyrirtækja SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu

BOÐUN AÐALFUNDAR SVÞ – SAMTAKA VERSLUNAR OG ÞJÓNUSTU

Með bréfi þessu er boðað til aðalfundar SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu hinn 12. mars 2026 kl. 11:00 á Parliament Hotel Reykjavík, Gamli Kvennó – Blái salur 2. hæð, Thorvaldsenstræti 2–6, 101 Reykjavík.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Ræða formanns SVÞ
  2. Skýrsla stjórnar SVÞ fyrir liðið starfsár
  3. Reikningar SVÞ fyrir liðið reikningsár
  4. Lýst kosningu meðstjórnenda í stjórn SVÞ
  5. Lýst kosningu í fulltrúaráð Samtaka atvinnulífsins
  6. Kosning löggilts endurskoðanda SVÞ
  7. Breytingar á samþykktum SVÞ
  8. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál

Nánar um einstaka dagskrárliði:

Um 2. Dagskrárlið

Skýrsla stjórnar SVÞ verður gerð aðgengileg á vefsvæði SVÞ fyrir fundinn. Á fundinum verður gerð grein fyrir helstu atriðum skýrslunnar.

Um 3. Dagskrárlið

Reikningar SVÞ fyrir reikningsárið 2025 munu liggja fyrir á skrifstofu SVÞ aðildarfyrirtækjum til skoðunar eigi síðar en frá með 4. mars 2026. Á fundinum verður gerð grein fyrir efni þeirra.

Um 4. og 5. Dagskrárliði

Til samræmis við ákvæði 2. málsl. 2. mgr. 14. gr. sbr. 2. mgr. 15. gr. samþykkta SVÞ skal kjósa þrjá meðstjórnendur til tveggja ára á aðalfundi SVÞ 2026, þ.e. kjörtímabilið milli aðalfunda 2026 og 2028.

Kjörnefnd SVÞ 2026 yfirfer framkomin framboð til stjórnar SVÞ og fulltrúaráðs Samtaka atvinnulífsins.

Framboðsfrestur rennur út 18. febrúar 2026. Berist nefndinni fleiri en þrjú framboð til stjórnar SVÞ eða fleiri framboð til fulltrúaráðs Samtaka atvinnulífsins en sem nemur fulltrúasætum SVÞ er þess vænst að kjörgögn verði send aðildarfyrirtækjum 19. febrúar 2026.

Kosningarnar verða rafrænar, kjörstjórn mun tilkynna um upphafs -og lokatíma með sérstakri tilkynningu.

Um 7. Dagskrárlið

Stjórn SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu leggur til eftirfarandi breytingu á samþykktum SVÞ, frá 26. maí 1999, með síðari breytingum:

  1. Í stað fjárhæðanna „kr. 25.000“ og „kr. 1.600.000“ í 9. gr. kemur: 30.000 kr.; og: 1.700.000 kr.
  2. Á eftir 2. málsl. 2. mgr. 9. gr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Fjárhæð lágmarksárgjalds og hámarksárgjalds skal hækka um 2,5% hinn 1. apríl ár hvert, í fyrsta sinn hinn 1. apríl 2027. Hækkun hvers árs skal koma til hækkunar á þeim hlutum árgjalds sem ekki hafa komið til innheimtu, sbr. 10. gr., á þeim degi. Stjórn SVÞ getur þó ákveðið að árleg breyting verði önnur en 2,5%, bæði til hækkunar eða lækkunar, ef sérstakar aðstæður gefa tilefni til.

Virðingarfyllst,

f.h. stjórnar SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu

Auður Daníelsdóttir
Formaður SVÞ

AÐALFUNDARBOÐ SVÞ 2026 —

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞIG Á AÐALFUND SVÞ