Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur krafið íslensk stjórnvöld um svör vegna fyrirkomulags á smásölu áfengra drykkja á Íslandi. Tilefnið er kvörtun sem snýr að því hvort núverandi fyrirkomulag standist skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum. 

Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að „þann 13. mars barst fjármála- og efnahagsráðuneytinu bréf frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) þess efnis að stofnuninni hefði borist kvörtun varðandi smásölu áfengra drykkja af hálfu íslenska ríkisins, nánar tiltekið Tóbaks- og áfengisverslunar ríkisins (ÁTVR).“ 

ESA hefur lagt fram sjö spurningar sem íslensk stjórnvöld þurfa að svara fyrir 20. apríl nk. Spurningarnar snúa að því hvort íslensk stjórnvöld geti réttlætt áframhaldandi einkarétt ÁTVR í ljósi þeirra breytinga sem orðið hafa á markaðnum á undanförnum árum. 

Samkvæmt fréttinni snúa spurningarnar m.a. að: 

  • heimild til sölu áfengis á framleiðslustað, 
  • útboði á smásölu áfengis í Fríhöfninni
  • og auknu aðgengi að áfengi, m.a. í gegnum netverslun. 

Í umfjölluninni segir að „að mati kvartanda ganga þessi atriði gegn yfirlýstum markmiðum áfengiseinokunarinnar, sem eru að draga úr áfengisneyslu, vinna gegn misnotkun áfengis og vernda lýðheilsu.“ 

Þá er sérstaklega vísað til þróunar netverslunar, þar sem „netverslanir skráðar í öðrum EES-ríkjum hafi opnað og bjóði íslenskum neytendum áfenga drykki, en birgðir þeirra og afhendingarstaðir séu þó á Íslandi.“ 

ESA bendir jafnframt á að þó heimilt sé að reka ríkiseinkasölu samkvæmt EES-samningnum verði hún að vera framkvæmd með þeim hætti að aðilum á markaði sé ekki mismunað. 

Ef svör íslenskra stjórnvalda teljast ekki fullnægjandi getur ESA hafið formlegt brotamál sem getur endað fyrir EFTA-dómstólnum. 

SVÞ: Aukið frelsi löngu orðið tímabært 

Samtök verslunar og þjónustu standa á bak við kvörtunina sem ESA vinnur nú með. 

Í frétt Morgunblaðsins er haft eftir Benedikt S. Benediktssyni, framkvæmdastjóra SVÞ, að: „Það hefur í raun lengi verið tímaspursmál hvenær til þess kæmi.“ Hann bendir á að þróun í verslun hafi breytt forsendum markaðarins: „Og svo ekki síst netverslunin sem er að vaxa.“ Þá segir hann einnig: „Það er að segja breyttra verslunarhátta, breyttrar menningar og ýmislegs fleira. Þingið virðist bara hafa átt í erfiðleikum með þetta.“ 

Þörf á skýrari leikreglum 

Málið varpar ljósi á breyttan veruleika í verslun og þjónustu þar sem tæknibreytingar, aukin netverslun og nýjar dreifileiðir hafa áhrif á hefðbundið regluverk.  Eitt af lykilhlutverkum SVÞ er að „stuðla að framförum í verslun og þjónustu, bættum starfsskilyrðum, aukinni arðsemi og samkeppnishæfni“. Málið undirstrikar mikilvægi þess að regluverk taki mið af raunverulegum markaðsaðstæðum og tryggi jafnan leikvöll fyrir fyrirtæki og neytendur. 


ESA kallar eftir skýringum á áfengisnotkun - spurning um samræmi í regluverki
  • Facebook
  • Twitter
  • Gmail
  • LinkedIn