Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ sagði hljóðið í kaupmönnum ljómandi gott þegar hann var spurður í fréttum RÚV í gærkvöldi. Hann sagði enga ástæðu til svartsýni í röðum kaupmanna. Aðspurður um helstu þætti sem hefðu áhrif á jólaverslun sagði Andrés „eins og staðan er hjá okkur í dag þá er nýbúið að gera kjarasamninga sem færir fólki aukinn kaupmátt, það er stöðugleiki framundan í þjóðfélaginu. Allar ytri ástæður eru þannig að það eru engar ástæður til að ætla annað en að jólaverslun fyrir þessi jól verði mjög öflug.“ Andrés segir verulega breytingu að verða á neyslumynstri og hegðun neytenda, bæði séu stórir alþjóðlegir verslunardagar afgerandi í verslun, Black Friday, Cyber Monday og fleiri dagar auk þess sem sífellt stærri hluti verslunar sé að færast á netið.
Flokkar
Nýlegt
- Sjö atriði úr nýrri gervigreindarskýrslu McKinsey sem skipta stjórnendur í verslun máli
- Fimm skilaboð OECD til stjórnenda um gervigreind og vinnumarkaðinn
- Innviðaráðuneytið hefur enn ekki innleitt reglur sem auðvelda orkuskipti í sendibílaflotum
- Þingsályktun um afnám gullhúðunar er mikilvægt skref í rétta átt.
- Fréttamolar SVÞ mai 2026
Fylgstu með!
Besta leiðin til þess er að vera skráð(ur) á póstlistann!