SVÞ gera athugasemdir við stórfellda hækkun sektarheimilda

Sektarheimildir langt umfram kröfur EES

SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu gera athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar á lögum um neytendasamninga, einkum ákvæði um stjórnvaldssektir. Samtökin telja ekki hafa verið sýnt fram á nauðsyn þess að ganga lengra við innleiðingu en skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum krefjast.

Samkvæmt frumvarpinu getur sektarhámark hækkað úr 10 milljónum króna í allt að 4% af ársveltu fyrirtækis eða jafnvirði tveggja milljóna evra, hvort heldur er hærra. SVÞ benda á að ákvæðið geti þannig leitt til mjög hás sektarhámarks, jafnvel hjá fyrirtækjum með litla ársveltu. Þá skorti greiningu á reynslu af framkvæmd gildandi laga og því hvort núverandi sektarheimildir hafi reynst ófullnægjandi.

Samtökin benda jafnframt á að þótt vísað sé til norskrar löggjafar sem fyrirmyndar sé ekki tekið mið af þeim skilyrðum sem þar gilda um alvarleika brota, ítrekun og saknæmi. Þá gera SVÞ athugasemdir við óskýr mörk milli heimilda Neytendastofu til beitingar dagsekta og stjórnvaldssekta.

SVÞ gera ekki athugasemdir við að viðurlög vegna alvarlegra brota á neytendalöggjöf hafi raunverulegan fælingarmátt en kalla eftir því að meðalhófs, fyrirsjáanleika og skynsemi verði gætt við útfærslu sektarheimilda.

Sjá umsögn –> Umsögn SVÞ Neytendasamn