Evrópusambandið hefur lagt 30 milljarða króna sekt, jafnvirði 200 milljóna evra, á netverslunarrisann TEMU vegna annmarka á eftirliti með vörum sem seldar eru í gegnum markaðstorg fyrirtækisins. Framkvæmdastjórn ESB telur fyrirtækið ekki hafa gripið til fullnægjandi ráðstafana til að koma í veg fyrir sölu hættulegra og ólöglegra vara til evrópskra neytenda.

Hættulegar vörur fundust í sölu

Samkvæmt framkvæmdastjórn ESB leiddi rannsókn í ljós að neytendur innan Evrópusambandsins væru í verulegri hættu á að rekast á vörur sem uppfylla ekki evrópskar öryggiskröfur þegar þeir versla á TEMU. Þar er meðal annars vísað til niðurstaðna úr prófunum og leynikaupum sem sýndu að hættulegar vörur voru aðgengilegar í gegnum vettvanginn.

Málið fellur undir reglur Evrópusambandsins um stafræna þjónustu, Digital Services Act (DSA), sem kveða á um sérstakar skyldur stórra netvettvanga til að greina og draga úr áhættu sem getur skapast fyrir neytendur.

Neytendur geta keypt hættulegar vörur án vitneskju

Málið hefur einnig vakið athygli hér á landi. Í umfjöllun RÚV um efnið kom fram að rannsóknir hafi sýnt að neytendur geti keypt vörur af erlendum netmarkaðstorgum án þess að gera sér grein fyrir því að þær innihaldi hættuleg eða bönnuð efni. Þar var jafnframt bent á að vörur sem ekki standast evrópskar kröfur geti ratað til neytenda í gegnum alþjóðlega netverslun, þrátt fyrir það eftirlit sem viðhaft er innan Evrópska efnahagssvæðisins.

Vaxandi áskorun fyrir eftirlit með netverslun

Málið dregur fram þær áskoranir sem stjórnvöld og eftirlitsaðilar standa frammi fyrir þegar kemur að eftirliti með vörum sem seldar eru beint til neytenda í gegnum alþjóðleg netmarkaðstorg. Framkvæmdastjórn ESB segir að markmið aðgerðanna sé að tryggja að netvettvangar axli ábyrgð á því að hættulegar og ólöglegar vörur séu ekki aðgengilegar neytendum í Evrópu.

TEMU þarf að svara fyrir 28. ágúst nk.

TEMU fær nú tækifæri til að svara niðurstöðum rannsóknarinnar áður en endanleg ákvörðun verður tekin. Framkvæmdastjórn ESB segir jafnframt að fyrirtækið kunni að þurfa að grípa til frekari aðgerða til að uppfylla skyldur sínar samkvæmt DSA-regluverkinu

Sjá frétt frá EU -> HÉR! 
Sjá frétt frá RÚV -> HÉR!