Rafræn kosning í stjórn SVÞ 2026 stendur nú yfir og lýkur á hádegi þann 11. mars nk. Félagsaðilar munu fá senda tilkynningu við upphaf kosningar en í henni munu m.a. koma fram upplýsingar um hvernig atkvæði verða greidd.

Hver félagsaðili fer með atkvæði í hlutfalli við greidd félagsgjöld ársins 2025. Hverjum heilum 1.000 krónum greiddra félagsgjalda fylgir eitt atkvæði. Tekið skal fram að enn er hægt að öðlast atkvæðisrétt með greiðslu vangoldinna félagsgjalda ársins 2025.

Í framboði til stjórnar SVÞ 2026-2028 eru:

 

Edda Rut Björnsdóttir framboð stjórnar SVÞ 2026-2028
  • Facebook
  • Twitter
  • Gmail
  • LinkedIn

Edda Rut Björnsdóttir framboð til stjórnar SVÞ 2026-2028

Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Innanlandssviðs, Eimskipafélag Íslands hf.

Edda hefur verið framkvæmdastjóri Innanlandssviðs Eimskips frá árinu 2024. Undir sviðið heyrir akstursþjónusta Eimskips á Íslandi ásamt vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu. Áður gegndi hún starfi framkvæmdastjóra Mannauðs- og samskiptasviðs Eimskips þar sem hún bar ábyrgð á mannauðs-, markaðs-, PR-, IR- og sjálfbærnimálum félagins á alþjóðavísu.

Edda hefur fjölbreytta reynslu úr atvinnulífinu. Hún starfaði í rúm tólf ár hjá Íslandsbanka, síðast sem forstöðumaður sölu og viðskiptastýringar á Fyrirtækja- og fjárfestasviði. Áður starfaði hún í átta ár í upplýsingatæknigeiranum sem sérfræðingur í verslunarlausnum.

Edda er með B.Sc. í viðskiptafræði með áherslu á tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún er varaformaður Samtaka verslunar og þjónustu og situr jafnframt í stjórn og framkvæmdastjórn Samtaka Atvinnulífsins.

„Í því hraða og síbreytilega umhverfi sem við störfum í þarf að hafa ríka aðlögunarhæfni, rækta mannauðinn og fylgja eftir örum tæknibreytingum sem móta framtíð verslunar og þjónustu. Það skiptir máli að íslensk fyrirtæki sitji við sama borð og fyrirtæki sem starfa á mörkuðum sem við berum okkur saman við og að við þurfum ekki að takast á við íþyngjandi byrðar sem skerða samkeppnisstöðu okkar sem þjóðar. Rekstrarumhverfið þarf að vera sanngjarnt, einfalt og hvetjandi til nýsköpunar, fjárfestinga og verðmætasköpunar.
Þau ár sem ég hef setið í stjórn SVÞ hef ég kynnst því mikilvæga og umfangsmikla starfi sem þar fer fram og ég vil gjarnan leggja mitt að mörkum til að halda áfram að efla það öfluga starf.“ ~ Edda Rut Björnsdóttir
_______________________________________________
Elín Tinna Logadóttir, framboð til stjórnar SVÞ 2026-2028
  • Facebook
  • Twitter
  • Gmail
  • LinkedIn

Elín Tinna Logadóttir, framboð til stjórnar SVÞ 2026-2028

Elín Tinna Logadóttir, framkvæmdastjóri 66°Norður, Iceland

Elín Tinna Logadóttir er framkvæmdastjóri 66°Norður á Íslandi og hefur áralanga reynslu af rekstri og stjórnun í íslenskri verslun og þjónustu. Hún hóf störf hjá 66°Norður árið 2008 og gegndi þar fjölbreyttum stjórnunarhlutverkum til ársloka 2022, meðal annars sem framkvæmdastjóri heildsölu- og fyrirtækjasviðs og mannauðs- og þjónustustjóri. Árið 2023 tók hún við sem framkvæmdastjóri Útilífs og bar ábyrgð á heildarrekstri félagsins áður en hún sneri aftur til 66°Norður sem framkvæmdastjóri starfseminnar á Íslandi. Elín Tinna er með B.A.-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.

„Ég hef starfað innan verslunar og þjónustu í rúm 20 ár og þekki vel þær áskoranir og tækifæri sem greinin stendur frammi fyrir. Ég tel gífurlega mikilvægt að styðja við íslenska verslun og snúa vörn í sókn þegar kemur að síharðnandi erlendri samkeppni og krefjandi rekstrarumhverfi. Verslun er ein af grunnatvinnugreinum Íslands og skiptir samfélagið miklu máli fyrir atvinnu, verðmætasköpun og daglegt líf landsmanna.
Ég tel jafnframt mikilvægt að efla samtal við stjórnvöld og aðra hagsmunaaðila og vinna markvisst að því að ryðja úr vegi þeim hindrunum sem standa í vegi fyrir blómlegum og samkeppnishæfum rekstri. Með minni reynslu vil ég vera skýr og ábyrgur talsmaður greinarinnar. Þess vegna býð ég mig fram til setu í stjórn SVÞ.“ ~ Elín Tinna Logadóttir.

 

 

__________________________________
Harpa Magnúsdóttir, framboð til stjórnar SVÞ 2026-2028
  • Facebook
  • Twitter
  • Gmail
  • LinkedIn

Harpa Magnúsdóttir, framboð til stjórnar SVÞ 2026-2028

Harpa Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Hoobla

Harpa er framkvæmdastjóri og stofnandi Hoobla ehf., sem hjálpar fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum að fá reynda sérfræðinga, stjórnendur og ráðgjafa í tímabundin verkefni og hlutastörf.

Með Hoobla fæst aukinn sveigjanleiki, viðbragðshraði og hagræðing, þar sem fyrirtæki geta skalað starfsemi sína upp og niður eftir þörfum og minnkað fastan kostnað.
Áður en Harpa stofnaði Hoobla starfaði hún í 15 ár hjá ORF Líftækni hf. og Bioeffect ehf. á sviði fjármála og mannauðsmála og var mannauðsstjóri félaganna er hún stofnaði Hoobla árið 2021.

Hún situr í stjórn SVÞ og er í fulltrúaráði SA.

„Til að tryggja samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja í krefjandi rekstrarumhverfi og þeim hröðu breytingum sem eiga sér stað í alþjóðlegu atvinnulífi þarf að stuðla að sveigjanleika, viðbragðshraða og aðlögunarhæfni fyrirtækja.

Samtök verslunar og þjónustu eru afar mikilvægur hagsmunaaðili og þrýstiafl sem stuðlar að hvetjandi og sanngjörnu rekstrarumhverfi og gætir hagsmuna fyrirtækja af öllum stærðum.

Ég hef setið í stjórn SVÞ og í fulltrúaráði SA síðasta árið og býð mig fram að nýju. Ég tel að reynsla mín og þekking komi að góðum notum í stjórninni til að rödd minni fyrirtækja eigi einnig sæti við borðið.“ ~Harpa Magnúsdóttir.

__________________________________

Inga Rut Jónsdóttir, framboð til stjórnar SVÞ 2026-2028
  • Facebook
  • Twitter
  • Gmail
  • LinkedIn

Inga Rut Jónsdóttir, framboð til stjórnar SVÞ 2026-2028

Inga Rut Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Kringlunnar

Inga Rut hefur starfað sem framkvæmdastjóri Kringlunnar undanfarin þrjú ár. Kringlan er ein stærsta verslunarmiðstöð landsins og hýsir fjölbreytt fyrirtæki í verslun og þjónustu. Í starfi sínu hefur Inga Rut unnið náið með rekstraraðilum og hagaðilum greinarinnar og fengið víðtæka innsýn í það rekstrarumhverfi sem íslensk verslun og þjónusta býr við í dag.

Áður starfaði Inga Rut hjá Reitum fasteignafélagi í rúm 17 ár, þar sem hún öðlaðist umfangsmikla reynslu af rekstri og þróun verslunar- og þjónustufasteigna. Þar vann hún náið með fjölmörgum fyrirtækjum í greininni og tók t.a.m þátt í stefnumótun Kringlunnar og uppbyggingu hennar í breytilegu og krefjandi markaðsumhverfi.

Verslun og þjónusta hafa fylgt Ingu Rut frá unga aldri, en hún er alin upp við verslunarrekstur og hóf störf tíu ára gömul hjá fyrirtæki foreldra sinna og vann í mörg ár við verslun. Hún þekkir því atvinnugreinina frá grasrót og upp í stjórnunar- og stefnumótunarhlutverk.

Inga Rut er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hún leggur áherslu á að íslensk fyrirtæki búi við sanngjarnt og samkeppnishæft rekstrarumhverfi, sérstaklega í ljósi aukinnar alþjóðlegrar netverslunar og hraðra breytinga í neytendahegðun. Samtök verslunar og þjónustu þurfa að vera skýr og áhrifamikill málsvari í þeirri baráttu.

Inga Rut vill leggja sitt af mörkum til að styrkja rödd greinarinnar, efla hana og tryggja að íslensk verslun og þjónusta hafi raunhæf tækifæri og til að vaxa og þróast.

„Ég tel að áralöng þekking mín og reynsla á sviði verslunar og þjónustu geti styrkt starf SVÞ og félögum innan þess vel. Mig langar að leggja mitt af mörkum til að draga fram og takast á við þær áskoranir sem íslensk verslun stendur frammi fyrir í dag. Ég er með mikinn metnað fyrir vexti og þróun íslenskrar verslunar og þess vegna býð ég mig fram til setu í stjórn SVÞ, til að stuðla að skýrum og árangursríkum framförum í greininni.“ ~ Inga Rut Jónsdóttir.

__________________________________

Jóhann Már Helgason framboð til stjórnar SVÞ 2026-2028
  • Facebook
  • Twitter
  • Gmail
  • LinkedIn

Jóhann Már Helgason, framboð til stjórnar SVÞ 2026-2028

Jóhann Már Helgason er forstöðumaður viðskipta og æðsti stjórnandi Wolt á Íslandi.

Í starfi sínu vinnur Jóhann náið með hundruðum íslenskra fyrirtækja í smásölu og veitingarekstri á degi hverjum. Þar kynnist hann af eigin raun þeim tækifærum og hindrunum sem verslun og þjónusta standa frammi fyrir á tímum hraðra tæknibreytinga, og hvernig nýjar lausnir geta opnað nýjar tekjulindir fyrir atvinnulífið.

Jóhann hefur víðtæka reynslu af rekstri, stefnumótun og uppbyggingu í hröðu umhverfi. Áður en hann hóf störf hjá Wolt var hann fjármálastjóri og hluthafi í matvæla- og nýsköpunarfyrirtækisins Lava Cheese, þar sem hann stýrði vexti félagsins og innreið á erlenda markaði, meðal annars í Þýskalandi og Bretlandi. Þessi reynsla, ásamt fyrri störfum sem framkvæmdastjóri Knattspyrnufélagsins Vals og Aftureldingar hefur gefið honum djúpan skilning á mikilvægi samkeppnishæfs og sveigjanlegs regluverks fyrir atvinnulífið. Jóhann er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og BA-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.

„Til þess að íslensk fyrirtæki í verslun og þjónustu geti blómstrað þarf rekstrarumhverfið að vera hvetjandi og laust við óþarfa stjórnsýsluhindranir. Ég vil sjá vinnumarkaðinn þróast í heilbrigða átt þar sem tækninýjungar eru nýttar til að auka sveigjanleika, bæta þjónustu og styðja við raunverulega verðmætasköpun fyrirtækja, án þess að kerfið íþyngi þeim. Atvinnulífið þarf svigrúm til að vaxa og mæta breyttum kröfum neytenda af krafti. Samtök verslunar og þjónustu eru lykilhreyfiafl í þessari vegferð, þau er rödd fyrirtækja sem skapa störf, þjónustu og verðmæti um allt land. Ég býð mig fram til stjórnar SVÞ vegna þess að ég brenn fyrir hagsmuni geirans og tel að reynsla mín úr tækni-, smásölu- og frumkvöðlaumhverfinu komi að góðum notum við að skapa skynsamlegra og skilvirkara rekstrarumhverfi fyrir okkar aðildarfyrirtæki.“ ~ Jóhann Már Helgason.

__________________________________

 

Magnús Magnússon, framboð til stjórnar SVÞ 2026-2027
  • Facebook
  • Twitter
  • Gmail
  • LinkedIn

Magnús Magnússon, framboð til stjórnar SVÞ 2026-2028

Magnús Magnússon, framkvæmdastjóri smásölu -og markaðssviðs Húsasmiðjunnar

Magnús hefur nær 20 ára reynslu úr smásölu-, bygginga- og matvörugeiranum og hefur starfað í smásölu, heildsölu og framleiðslu allan sinn feril.
Hann þekkir rekstrarumhverfi verslunar og þjónustu af eigin raun allt frá innkaupum til sölu-, markaðs- og verðlagningarmála.

Hann hefur víðtæka reynslu af samstarfi við bæði íslenska og erlenda birgja. Þá hefur hann einnig mikla reynslu af samskiptum við fjölmiðla og auglýsingastofur og starfar í umhverfi þar sem samkeppnishæfni, arðsemi og skilvirkni eru lykilþættir í daglegum rekstri. Sú reynsla hefur styrkt sýn hans á mikilvægi þess að íslensk verslun og þjónusta búi við stöðug og samkeppnishæf rekstrarskilyrði.

Magnús situr í stjórn ÍMARK og hefur þar tekið virkan þátt í faglegri umræðu um þróun markaðsmála og þær breytingar sem fagið hefur gengið í gengum og búast má við á næstu árum.

Í framboði til stjórnar SVÞ vill Magnús leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar samtakanna og styðja við það öfluga starf sem þegar er unnið. Hann leggur áherslu á að styrkja enn frekar rödd verslunar og þjónustu, efla samtal og ímynd greinarinnar og stuðla að umhverfi þar sem fyrirtæki í verslun og þjónustu geta aukið samkeppnishæfni til lengri tíma.

Magnús er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og með meistaramenntun í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræðum frá Háskóla Íslands og Copenhagen Business School.

„Verslun og þjónusta eru ekki aðeins atvinnugrein fyrir mér heldur er vettvangur sem ég hef starfað á allan minn feril og brenn fyrir. Ég þekki áskoranirnar sem fylgja samkeppni og breyttri kauphegðun og veit jafnframt hversu mikil tækifæri felast í faglegri markaðssókn og öflugum rekstri. Ég vil leggja mitt af mörkum til að styrkja stöðu greinarinnar, efla hagsmunagæslu hennar og tryggja að íslensk fyrirtæki hafi raunhæf og sanngjörn skilyrði til að ná árangri.“ ~ Magnús Magnússon.

__________________________________

Magnus Örn Gunnarsson, framboð til stjórnar SVÞ 2026-2028
  • Facebook
  • Twitter
  • Gmail
  • LinkedIn

Magnus Örn Gunnarsson, framboð til stjórnar SVÞ 2026-2028

Magnús Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Drífa þjónusta ehf.

Magnús Örn Gunnarsson er framkvæmdastjóri og meðstofnandi Drífu, íslensks tæknifyrirtækis sem einfaldar verslun og þjónustu í kringum dekk með stöðlun gagna, sjálfvirknivæðingu og markvissri nýtingu notendarannsókna. Markmið félagsins er að draga úr flækjustigi, auka framleiðni og bæta upplifun viðskiptavina með gagnsæjum og skilvirkum ferlum.

Samhliða Drífu er Magnús stjórnarmaður Nordr OPS ehf. og sinnir stefnumótun og uppbyggingu skalanlegra kerfa með áherslu á viðskiptaþróun. Hann hefur einnig starfað á alþjóðavettvangi, meðal annars hjá Asteroid Mining Corporation í Bretlandi sem ráðgjafi framkvæmdastjóra, og leitt uppbyggingu rannsóknar- og tengslanets á Íslandi sem framkvæmdastjóri Rannsóknarmiðstöðvar um samfélags- og efnahagsmál.

Magnús hefur víðtæka reynslu af stjórnunarstörfum og alþjóðlegri verkefnastjórn. Hann var valinn Leader of Tomorrow hjá St. Gallen Symposium við University of St. Gallen og situr í stjórn Varðbergs. Í störfum sínum hefur hann lagt áherslu á að tengja saman stefnu, tækni og framkvæmd þannig að hugmyndir skili árangri.

„Gervigreind og sjálfvirknivæðing eru þegar farin að umbreyta rekstri fyrirtækja. Framtíðin kemur hratt og af krafti. Ég tel að íslensk verslun og þjónusta þurfi skýrari stefnu, einfaldara regluverk og markvissa tækninýtingu til að auka framleiðni og samkeppnishæfni. Ég vil leggja mitt af mörkum til að SVÞ verði öflugur vettvangur sem undirbýr fyrirtæki fyrir þá umbreytingu sem þegar er hafin.“ ~ Magnús Örn Gunnarsson

Nánari upplýsingar um starfsferil má sjá á LinkedIn.

__________________________________

Sigtryggur Arnþórsson, framboð til stjórnar SVÞ 2026-2028
  • Facebook
  • Twitter
  • Gmail
  • LinkedIn

Sigtryggur Arnþórsson, framboð til stjórnar SVÞ 2026-2028

Sigtryggur Arnþórsson, framkvæmdastjóri og stofnandi Jökulá ehf.

Jökulá er 13 manna sérfræðifyrirtækis sem veitir fyrirtækjum ráðgjöf á sviði ásýndar, notendaupplifunar og vef- og viðmótshönnunar. Í starfi sínu vinnur Sigtryggur náið með fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum og hefur djúpan skilning á áskorunum í rekstri, samkeppnishæfni og þróun þjónustu.

Sigtryggur sat í Leiðtogaráði SVÞ árin 2024 til 2025 og hefur auk þess komið að stofnun og uppbyggingu fjölda frumkvöðlafyrirtækja, setið í stjórnum og tekið þátt í starfi viðskiptahraðla. Hann hefur búið, starfað og rekið fyrirtæki í London, á Spáni og í Danmörku, ásamt því að hafa unnið með erlendum fyrirtækjum í gegnum Jökulá, sem hefur veitt honum alþjóðlega sýn á rekstrarumhverfi og samkeppni.

Sigtryggur er með B.S. í viðskiptalögfræði og ML í lögfræði frá Háskólanum á Bifröst.

„Með stöðugri samvinnu í gegnum störf mín hjá Jökulá við fyrirtæki, félög og stofnanir af öllum stærðum og gerðum, ásamt ríkum áhuga á að greina áskoranir og finna raunhæfar lausnir, hef ég öðlast skýra sýn á hvar tækifæri liggja til að einfalda og bæta rekstrarskilyrði verslunar- og þjónustufyrirtækja sem ég vil miðla í áfram með þátttöku minni í stjórn SVÞ.“ ~ Sigtryggur Arnþórsson