Í nýju viðtali á Vísi  fjallar Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu, um fyrirhugaðan svokallaðan óhollustuskatt og áhrif hans á heimilin í landinu.

Í viðtalinu bendir Benedikt á að slíkur skattur hafi mest áhrif á þau heimili sem hafa lægri tekjur og minna svigrúm í ráðstöfunartekjum. Hann varar við því að almennar skattahækkanir á tilteknar vörur geti aukið kostnaðarþrýsting á viðkvæmustu hópana án þess að tryggt sé að markmiðum um bætta lýðheilsu verði náð.

SVÞ leggur áherslu á að aðgerðir í þágu lýðheilsu þurfi að byggja á vandaðri greiningu, gagnsæi og mati á raunverulegum samfélagslegum áhrifum – þar á meðal dreifingu byrða milli tekjuhópa.

Lesa má nánar um málið og sjónarmið SVÞ í viðtalinu á Vísi – HÉR!

Sjá viðtal við Benedikt S. Benediktsson, í Viðskiptablaðinu – HÉR!