Tryggja þarf skýrar heimildir og ábyrgð við innleiðingu umsýsluumboða

Samtök heilbrigðisfyrirtækja (SH) styðja markmið fyrirhugaðrar reglugerðar um umsýsluumboð, sem ætlað er að tryggja jafnt og öruggt aðgengi að stafrænni heilbrigðisþjónustu óháð færni einstaklinga. Samtökin telja þó að verulegir annmarkar séu á útfærslu reglugerðarinnar sem bæta þurfi úr fyrir gildistöku hennar.

Samtökin benda á að óskýr ákvæði leggi verulega ábyrgð á lækna og annað starfsfólk heilbrigðisfyrirtækja. Þá skorti fullnægjandi lagastoð fyrir aðgangi umboðshafa að lyfjasögu í tilteknum tilvikum og tryggja þurfi samræmi við reglur um þagnarskyldu, persónuvernd og réttindi sjúklinga.

SH leggja áherslu á að skýra skyldur rekstraraðila heilbrigðisgátta, tryggja einkareknum og opinberum heilbrigðisgáttum jafnan aðgang að umboðsgrunninum og að Embætti landlæknis beri kostnað af tengiskilum. Jafnframt þurfi að kveða á um endurgjald fyrir vinnu sérfræðilækna, réttaröryggi þeirra og skilyrði sem umboðshafar þurfa að uppfylla.

Samtökin leggja til að gildistöku reglugerðarinnar verði frestað til 1. júní 2027 til að tryggja nægan tíma til tæknilegrar innleiðingar, þjálfunar starfsfólks og aðlögunar verklags.

Sjá umsögn SVÞ –> Umsögn Samtaka heilbrigðisfyrirtækja umsýsluumboð