Fyrirhugaðar breytingar á lyfjalögum gætu aukið lyfjaskort

Samtök lyfjaheildsala vara við því að fyrirhugaðar breytingar á lyfjalögum geti haft öfug áhrif á markmið frumvarpsins og dregið úr framboði lyfja á Íslandi. Samtökin telja að ekki hafi verið tekið tillit til veigamikilla athugasemda sem þau hafa komið á framfæri á fyrri stigum málsins.

Megináhersla samtakanna er að ríkið greiði fyrir það birgðahald neyðarlyfja sem stjórnvöld krefjast. Birgðaskylda án endurgjalds eykur rekstrar- og fjármagnskostnað lyfjaheildsala og getur dregið úr hvata til að markaðssetja lyf hér á landi.

Samtökin gera jafnframt athugasemdir við óskýr viðurlagaákvæði, takmarkaðan kærurétt, gjaldtöku vegna eftirlits með lækningatækjum, fyrirkomulag undanþágulyfja og áframhaldandi verðstýringu dýralyfja.

Samtökin hvetja Alþingi til að takmarka breytingar við það sem sannanlega er nauðsynlegt, tryggja fyrirsjáanleika í rekstrarumhverfi lyfjamarkaðarins og taka mið af væntanlegri heildarendurskoðun lyfjalöggjafar EES.

Sjá umsögn SVÞ –> Umsögn Samtaka lyfjaheildsala um breytingu á lyfjalögum (lyfjaskortur)