Umsögn um frumvarp til laga um viðbrögð við lyfjaskorti o.fl.

SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu hafa, fyrir hönd Samtaka lyfjaheildsala, skilað umsögn, dags. 7. apríl 2026, um frumvarp til laga um viðbrögð við lyfjaskorti o.fl., þar sem bent er á skort á heildrænni greiningu og óvissu um áhrif breytinga á lyfjamarkað.

Í umsögninni er m.a. fjallað um breytingar á lyfjalögum, birgðaskyldu, viðurlög og reglugerðarheimildir, auk þess sem tekið er fram að taka þurfi mið af alþjóðlegu eðli lyfjamarkaða og væntanlegri endurskoðun innan EES.

SMELLTU HÉR til að lesa umsögnina.

SVÞ varar við óhóflegum breytingum á lyfjalögum

SVÞ varar við óhóflegum breytingum á lyfjalögum

Samtök lyfjaheildsala, sem starfa innan SVÞ, hafa skilað umsögn um frumvarp heilbrigðisráðherra um breytingar á lyfjalögum, þar sem varað er við því að frumvarpið kunni að draga úr framboði lyfja á Íslandi – þvert á yfirlýst markmið þess að tryggja lyfjaöryggi.

Í umsögninni kemur fram að frumvarpið byggi á ófullnægjandi greiningu og að það kunni að hafa í för með sér inngrip í daglega starfsemi fyrirtækja á lyfjamarkaði sem hvorki séu nauðsynleg né réttlætanleg. Sérstaklega er gagnrýnt að raska eigi þeim undanþágum sem hingað til hafa tryggt að lyf með markaðsleyfi, en ekki markaðssett, séu aðgengileg á íslenskum markaði.

SVÞ leggur áherslu á mikilvægi þess að stjórnvöld ræði við hagaðila áður en gerðar eru umfangsmiklar breytingar á viðkvæmum markaði – og hvetur til opins samtals um raunhæfar lausnir sem styðja við markmið um lyfjaöryggi.

Umsögnina má lesa í heild sinni hér: Umsögn frumvarp til laga um breytingu á lyfjalögum 2025-05-16