Tryggja þarf jafnræði barna óháð rekstrarformi skóla
Sjálfstæðir skólar (SSK) taka undir markmið tillögu til þingsályktunar um stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna til ársins 2031. Samtökin leggja áherslu á að fyrirkomulag fjármögnunar skólastarfs stuðli að jafnræði barna og að efnahagur fjölskyldna takmarki ekki möguleika þeirra til skólavals.
SSK telja mikilvægt að tryggja fullnægjandi og sanngjarna opinbera fjármögnun skólastarfs, óháð rekstrarformi, og að fjármögnun taki mið af þörfum nemenda. Aðgerðir til að draga úr kostnaði vegna skólatengdra viðburða þurfa jafnframt að ná til allra nemenda og tryggja börnum í sjálfstætt starfandi skólum sambærilegan stuðning og börnum í sveitarfélagareknum skólum.
Samtökin kalla eftir virku samráði við sjálfstætt starfandi skóla og samtök þeirra við útfærslu aðgerða. Þá leggja SSK áherslu á að nýjum verkefnum og auknum kröfum fylgi fullnægjandi fjármögnun svo framkvæmd þeirra leiði hvorki til aukinnar fjárhagslegrar byrði fyrir skóla né foreldra.
SSK hvetja stjórnvöld til að tryggja jafnræði barna og standa vörð um fjölbreytni og sjálfstæði í skólastarfi við framkvæmd stefnunnar.
Sjá umsögn SVÞ –> Umsögn Sjálfstæðra skóla um stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna til ársins 2031