Allt að 100 þúsund Íslendingar hafa keypt áfengi af öðrum smásölum en ÁTVR. Nýleg könnun Gallup sýnir að um þriðji hver landsmaður hefur verslað áfengi í vefverslun og hlutfallið nálgast 60% meðal fólks á aldrinum 20–39 ára.
Þetta kemur fram í frétt Vísis um samstarfsherferð SVÞ og sérvöruverslana með áfengi. Markmið herferðarinnar er að draga fram þá staðreynd að neytendur hafa þegar valið aukið valfrelsi — á meðan löggjöfin hefur ekki fylgt þróun markaðarins.
Núverandi reglur heimila erlendum fyrirtækjum að selja áfengi til Íslands í gegnum vefverslun en gera ekki ráð fyrir sambærilegum möguleika fyrir íslensk fyrirtæki. Með skýrari lagaramma væri hægt að jafna samkeppnisstöðu fyrirtækja og tryggja um leið fullnægjandi eftirlit með aldri kaupenda, opnunartíma, aðgengi og markaðssetningu.
Á sama tíma og vefverslun og sérvöruverslanir hafa rutt sér til rúms hefur áfengisneysla hér á landi minnkað um tæp 11% frá árinu 2021.
„Þjóðin hefur alltaf tekið skrefin á undan löggjafanum þegar kemur að áfengislöggjöf,“ segir Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ. Veruleikinn sé sá að fólk vilji val og ekki sé raunhæft að ætla að snúa þróuninni við.
Nánari upplýsingar og staðreyndir um vefverslun með áfengi má finna á valfrelsi.is.