SVÞ sendi þann 28. apríl 2026 frá sér umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum að teknu tilliti til breytingatillögu meiri hluta efnahags – og viðskiptanefndar.
Þar kemur m.a. fram að SVÞ telur það grafalvarlegt mál að meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar sýni vilja til að stíga svo harkalega inn í fyrirtækjarekstur að taka að stýra verðlagningu og mótmæla því harðlega. Fordæmi slíks í seinni tíma hagssögu Íslands eru fá ef nokkur. Má segja að með umfjöllun í nefndarálitinu kveði við nýjan tón sem ekki hefur heyrst frá ríkisstjórnarflokkum um langa hríð, meira að segja í tíð ríkisstjornar sem starfaði í eftirmála efnahagshrunsins þegar þjóðin tókst á við umtalsverða efnahagslega erfiðleika. Leggjast SVÞ alvarið gegn því að slík skref verði stigin.
SMELLTU HÉR til að lesa alla umsögnina.