01/09/2026 | Stjórnvöld, Umsagnir, Úr hagsmunagæslunni
SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu hafa skilað umsögn um áform um breytingar á lögum um neytendasamninga. Samtökin leggja áherslu á að skýrar og gegnsæjar reglur efli traust í viðskiptum og að innleiðing EES-gerða feli ekki í sér óþarfa íþyngjandi séríslenskar kröfur.
Í umsögninni er bent á að auknar byrðar á fyrirtæki geti leitt til hærra verðs og minna úrvals fyrir neytendur og skert samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja gagnvart erlendum netverslunum. SVÞ hvetja til þess að meðalhófs verði gætt við útfærslu viðurlaga og að greining á undanþágum og leiðum til sem minnst íþyngjandi innleiðingar verði gerð opinber, liggi hún fyrir.
Sjá umsögn SVÞ -> 01092026 SVÞ – ums. samr 153-2026. áform Neytendasamningar (1)
21/08/2026 | Faggildingarstofur, Stjórnvöld, Umsagnir, Úr hagsmunagæslunni
SVÞ taka jákvætt í áform stjórnvalda um að einfalda byggingarreglugerð og breyta fyrirkomulagi byggingareftirlits. Samtökin leggja áherslu á að þegar eftirlit færist í auknum mæli til óháðra skoðunarstofa verði tryggt að þær séu jafnframt faggiltar.
Í umsögninni taka SVÞ undir að bæta þurfi úr vanköntum núverandi kerfis, sem í áformum stjórnvalda er lýst sem íþyngjandi og óskilvirku, auk þess sem ósamræmis gæti í túlkun og framkvæmd byggingarreglugerðar. Fyrirhugað er að færa ytra eftirlit með hönnun og framkvæmd að verulegu leyti frá byggingarfulltrúum til óháðra skoðunarstofa.
SVÞ telja jákvætt að áhersla sé lögð á óhæði þeirra sem annast úttektir en leggja til að sérstaklega verði kveðið á um faggiltar skoðunarstofur. Þannig megi tryggja bæði óhæði eftirlitsins og nauðsynlega fagþekkingu.
Sjá nánar –> 21.08.2026 Umsögn SVÞ – Frumvarp um breytingu á lögum um mannvirki nr. 160/2010 (einföldun byggingarreglugerðar og breytt byggingareftirlit
18/08/2026 | Samtök heilbrigðisfyrirtækja, Stjórnvöld, Umsagnir, Úr hagsmunagæslunni
Samtök heilbrigðisfyrirtækja (SH) taka jákvætt í markmið frumvarps um stafræna heilsu og telja löngu tímabært að taka stafræn málefni heilbrigðisþjónustunnar föstum tökum. Samtökin leggja þó áherslu á skýrari varnagla svo einkareknir þjónustuveitendur njóti ávinnings sameiginlegra innviða á sömu forsendum og opinberir aðilar.
SH telja að sameiginlegir stafrænir innviðir geti bætt aðgengi að upplýsingum, samfellu í þjónustu og skapað aukið svigrúm fyrir samstarf og nýsköpun. Mikilvægt sé þó að tæknilegt umhverfi verði opið og komið verði í veg fyrir birgjalæsingu þannig að hægt sé að nýta lausnir ólíkra aðila sem uppfylla settar kröfur.
Í umsögninni er meðal annars kallað eftir jafnræði opinberra og einkarekinna þjónustuveitenda, bindandi samráði, skýrri kostnaðarskiptingu og raunhæfum aðlögunartíma. Þá þurfi að tryggja réttaröryggi ef tengingu við sameiginlega innviði er synjað eða hún rofin, skýra ábyrgð vegna bilana og tryggja valfrelsi og opna tæknistaðla. Að öðrum kosti sé hætta á að einkaaðilar beri verulegan kostnað og rekstraráhættu án samsvarandi áhrifa á mótun kerfisins.
Sjá nánari –> 20260818-: Umsögn um drög að frumvarpi til laga um Stafræna heilsu
18/08/2026 | Stjórnvöld, Umsagnir, Úr hagsmunagæslunni
SVÞ fagna áformum stjórnvalda um markvissari aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi og taka undir markmið um skilvirkari afbrotavarnir, rannsóknir og saksókn. Samtökin leggja jafnframt til breytingu sem styrki stöðu fyrirtækja og annarra einkaréttarlegra aðila sem eiga kröfur vegna brota.
Í umsögninni benda SVÞ á að skilyrði fyrir því að hafa uppi einkaréttarkröfur í sakamálum séu ströng og að hætta geti skapast á að kröfuhafar missi réttar síns ef þeir eða fyrirsvarsmenn þeirra geta ekki mætt fyrir dóm. Samtökin telja því rétt að ákæranda verði með skýrum hætti gert skylt að taka við umboði og fylgja slíkum kröfum eftir fyrir hönd kröfuhafa.
Að mati SVÞ myndi slík breyting draga úr samfélagslegu tjóni, styrkja réttarstöðu þolenda og minnka þann kostnað sem getur fallið á fyrirtæki við að gæta hagsmuna sinna í sakamálum.
Sjá nánari hér –> 18082026 Umsögn SVÞ Áform um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi
18/08/2026 | Stjórnvöld, Umsagnir, Úr hagsmunagæslunni
SVÞ taka undir áherslur hvítbókar um byggðamál um mikilvægi öflugs atvinnulífs, traustra innviða og góðs aðgengis að þjónustu. Samtökin leggja sérstaklega áherslu á að samgöngur, vöruflutningar, rekstrarskilyrði verslunar og aðgengi að sérfræðiþjónustu verði hluti af heildstæðri byggðastefnu.
SVÞ benda á að áreiðanlegar vegasamgöngur og góð vetrarþjónusta séu grundvallarforsenda þjónustu og verðmætasköpunar á landsbyggðinni. Þá telja samtökin mikilvægt að tekjur sem innheimtar eru vegna notkunar ökutækja skili sér með skýrari hætti til viðhalds, þjónustu og uppbyggingar vegakerfisins.
Í umsögninni er jafnframt fjallað um rekstrarskilyrði dagvöruverslana í minni byggðarlögum. SVÞ telja að stuðningsúrræði þurfi að útfæra í nánu samráði við hagaðila og án þess að raska samkeppni. Samtökin hvetja einnig til þess að skoðað verði hvort heimila megi áfengissölu í slíkum verslunum, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, til að styrkja tekjugrundvöll þeirra.
SVÞ fagna einnig áherslu á betra aðgengi að sérhæfðri heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni og telja mikilvægt að nýta bæði opinbera og einkarekna þjónustuveitendur, þar á meðal stað- og fjarþjónustu.
Sjá nánar hér –> 20060818 Umsögn um hvítbók um byggðamál
17/08/2026 | Stjórnvöld, Umsagnir, Úr hagsmunagæslunni
SVÞ vara við því að innleiðing kolefnisgjalds við landamæri (CBAM) geti haft veruleg áhrif á innkaupsverð og kostnað íslenskra fyrirtækja. Samtökin leggja áherslu á vandaða innleiðingu, að komið verði í veg fyrir gullhúðun og að stjórnvöld greini bæði bein og afleidd áhrif kerfisins á atvinnulífið.
SVÞ áætla að verðmæti innflutnings til Íslands árið 2025 í þeim vöruflokkum sem falla undir CBAM hafi verið um 60 milljarðar króna. Þar vega járn og stál þyngst, með um 36 milljarða króna innflutningsverðmæti, en einnig falla meðal annars ál og álvörur, áburður og sement undir kerfið. Samtökin benda á að CBAM geti bæði hækkað kostnað við innflutning frá ríkjum utan EES og haft áhrif til hækkunar á verði sambærilegra vara innan EES.
SVÞ kalla jafnframt eftir greiningu á tengslum CBAM við aðra íslenska löggjöf, meðal annars tollalög og lög um úrvinnslugjald. Mikilvægt sé að stjórnvöld geri grein fyrir beinum og óbeinum áhrifum innleiðingarinnar áður en henni er lokið, ekki síst þar sem gert er ráð fyrir að gildissvið CBAM geti síðar orðið víðtækara.
Sjá nánar hér –> 17.08.26Umsögn um drög að frumvarpi um Aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (CBAM)
Síða 2 af 8«12345...»Síðasta »