Umsögn SVÞ um upptöku EUDR-reglugerðarinnar í EES-samninginn

SVÞ vara við kostnaðarhækkunum vegna EUDR-reglugerðarinnar

SVÞ hafa skilað umsögn til Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um fyrirhugaða upptöku EUDR-reglugerðar Evrópusambandsins í EES-samninginn. Reglugerðin miðar að því að draga úr eyðingu skóga með auknum kröfum um rekjanleika tiltekinna vara og hráefna sem flutt eru inn á Evrópumarkað.

Í umsögninni kynna SVÞ niðurstöður greiningar á innflutningi vara sem falla undir gildissvið reglugerðarinnar. Greiningin bendir til þess að reglugerðin geti haft veruleg áhrif á íslensk fyrirtæki sem reiða sig á innflutning frá löndum utan EES, meðal annars vegna aukinnar stjórnsýslu og breyttra innkaupaleiða.

SVÞ benda á að fyrirtæki kunni í auknum mæli að færa viðskipti sín til birgja innan EES til að draga úr áhættu og umsýslu. Slík tilfærsla gæti þó leitt til hærri innkaupakostnaðar og takmarkaðra vöruframboðs. Greining samtakanna bendir til þess að árlegur viðbótarkostnaður íslenskra innflytjenda gæti numið allt að þremur milljörðum króna ef innflutningur færist í stórum stíl frá ríkjum utan EES yfir til EES-ríkja.

Sérstaklega er fjallað um áhrif reglugerðarinnar á kaffimarkaðinn, þar sem íslensk fyrirtæki hafa um árabil byggt upp viðskiptasambönd við framleiðendur í Suður-Ameríku og Afríku. SVÞ telja að nýjar upplýsingakröfur geti gert slík viðskipti flóknari og kostnaðarsamari, með mögulegum áhrifum á verð og framboð til neytenda.

SVÞ leggja áherslu á að við innleiðingu nýs regluverks verði metin áhrif þess á íslenskt atvinnulíf og neytendur, þannig að markmið um sjálfbærni náist án þess að óþarfa kostnaður og flækjustig leggist á fyrirtæki og heimili.

Smelltu –> Umsögn SVÞ til URN EUDR í EES

Fréttamolar SVÞ mai 2026

Fréttamolar SVÞ mai 2026

Maí einkenndist af umræðu um rekstrarskilyrði fyrirtækja, vaxandi erlenda netverslun og auknar kvaðir í regluverki.

SVÞ vakti sérstaka athygli á áhrifum „gullhúðaðra“ peningaþvættisreglna á bílgreinina og kallaði eftir einfaldara og skýrara regluverki sem styður samkeppnis-hæfni íslenskra fyrirtækja.Þá fjölluðu samtökin jafnframt um þróun bílamarkaðarins, umhverfismál og nýja greiningu á netverslun á Íslandi.

Smelltu á blaðið hér fyrir neðan.

FRÉTTAMOLAR SVÞ MAÍ 2026

Umsögn um aðgerðaráætlun í málefnum offitu

SVÞ, SA og SI gera athugasemdir við tillögur um aukna skattlagningu og aðrar íþyngjandi aðgerðir í aðgerðaráætlun stjórnvalda í málefnum offitu. Samtökin vara við auknu flækjustigi í skattkerfinu, hærri kostnaði fyrir fyrirtæki og neytendur og óvissu um raunveruleg áhrif aðgerðanna á neysluhegðun og lýðheilsu. Þá leggja samtökin áherslu á samráð við atvinnulífið og hvetja frekar til jákvæðra og hvetjandi leiða til að stuðla að breyttri neysluhegðun.

Sjá umsögnina hér – Umsögn um tillögu til þingsályktunar um aðgerðaráætlun um málefni offitu

Umsögn SVÞ um breytingu á reglugerð um varnir gegn olíumengun frá starfsemi á landi.

SVÞ óska eftir nánara samráði um reglur vegna varna gegn olíumengun

SVÞ hafa skilað umsögn um drög að breytingu á reglugerð um varnir gegn olíumengun frá starfsemi á landi. Samtökin telja að fyrirhugaðar breytingar gangi að hluta of langt eða séu ekki nægilega rökstuddar, einkum með tilliti til kostnaðar, meðalhófs, áhættu og áhrifa á mikilvæga innviði.

Í umsögninni benda SVÞ á að krafa um reglubundnar þykktarmælingar olíubirgðageyma eftir 15 ára notkun geti haft í för með sér verulegan kostnað og röskun á starfsemi. Slíkar mælingar krefjast þess að geymar séu tæmdir og geta haft áhrif á rekstur, afhendingaröryggi og öryggi starfsmanna. SVÞ telja að áður en slík krafa verði innleidd þurfi að liggja fyrir skýrt kostnaðar- og áhættumat.

Samtökin vara einnig við því að krafa um að rífa geyma innan sex mánaða frá því að þeir eru teknir úr notkun geti farið illa saman við markmið stjórnvalda um aukið olíuöryggi og neyðarbirgðir. Þá sé óljóst hvort tekið hafi verið nægilegt tillit til leyfisferla, skipulagsmála og mögulegs mats á umhverfisáhrifum, sem geti tekið lengri tíma en sex mánuði.

Meginniðurstaða SVÞ er að nánara samráð þurfi að eiga sér stað við hagaðila áður en breytingar á reglugerðinni verða kláraðar. Reglur sem varða mikilvæga innviði, rekstraröryggi og kostnað fyrirtækja þurfa að byggja á skýrum rökum, meðalhófi og mati á raunverulegum áhrifum.

Sjá umsögn SVÞ hér fyrir neðan.
060526 samr. 71-2026 Umsögn SVÞ – regl varn gegn olíumengun

Umsögn um fjármálaáætlun 2027–2031

SVÞ lýsir áhyggjum af aukinni gjaldtöku á ökutæki og eldsneyti í fjármálaáætlun stjórnvalda og telur skorta skýrleika um hvernig fyrirhugaðar tekjuaukningar eigi að nást. Samtökin vara við áhrifum aukinna álaga á heimili, fjárfestingu og rekstur fyrirtækja og leggja áherslu á fyrirsjáanleika, gagnsæi og virkt samráð við atvinnulífið. Þá er kallað eftir skýrari heildarsýn um framtíðargjaldtöku tengda samgöngum og innviðum.

Sjá nánar – 04052026 Umsögn SVÞ um fjármálaáætlun 2027-2031

Fréttamolar SVÞ apríl 2026

Fréttamolar SVÞ apríl 2026

Apríl mánuður einkenndist af skýrri og markvissri hagsmunagæslu SVÞ, sérstaklega í tengslum við eldsneytismál, verðstýringu og lagasetningu. Viðfangsefnin voru veigamikil og snertu beint rekstrarumhverfi fyrirtækja. Umræða um samkeppnishæfni, hlutverk stjórnvalda og undirbúning lagasetningar var áberandi. Einnig var sjónum beint að samgöngumálum sem lykilþætti í starfsemi fyrirtækja.

Smelltu á blaðið hér fyrir neðan.

FRÉTTAMOLAR SVÞ APRÍL 2026