03/11/2026 | Fréttamolar SVÞ, Fréttir, Verslun, Þjónusta
Í október beindu SVÞ sjónum að áhrifum aukinna álaga á rekstur fyrirtækja, flutningskostnað og verðlag. Samtökin fjölluðu um húsaleigumál og hvata til viðhalds og endurbóta á húsnæði. Haustréttir leiddu saman stjórnendur til samtals um umbreytingar og rekstrar- skilyrði. Við fjöllum um netverslun, októberátak Ræktum vitið og Umhverfisdag atvinnulífsins.
FRÉTTAMOLAR SVÞ OKT 2026
06/10/2026 | Fréttamolar SVÞ, Fréttir, Verslun, Þjónusta
Í september beindu SVÞ sjónum að íslenskum leigumarkaði með þremur greinum sem fjalla um hlutverk leigufélaga, gögn um markaðinn og áhrif leigustýringar. Samtökin kynntu jafnframt breytingar á stjórn og starfsmannahópi, vöktu athygli á þróun evrópskrar netverslunar og undirbjuggu viðburði og verkefni októbermánaðar. Fram undan eru meðal annars Haustréttir SVÞ, símenntunarátakið Ræktum vitið og Umhverfisdagur atvinnulífsins.
FRÉTTAMOLAR SVÞ SEPTEMBER 2026
01/09/2026 | Fréttamolar SVÞ, Fréttir, Innra starf, Stjórnvöld, Úr hagsmunagæslunni
Júlí og ágúst einkenndust af öflugri hagsmunagæslu í samkeppnis- og regluverksmálum, þar sem sjónum var sérstaklega beint að dagvöruverði, nýjum umbúðareglum og breyttu fyrirkomulagi áfengissölu, auk þess sem SVÞ fylgdust með alþjóðlegri þróun og áhrifum hennar á íslenska verslun og þjónustu.
FRÉTTAMOLAR SVÞ ÁGÚST 2026
29/06/2026 | Fréttamolar SVÞ, Fréttir, Greining, Í fjölmiðlum, Umsagnir, Úr hagsmunagæslunni, Útgáfa, Verslun, Þjónusta
Júní einkenndist af fjölbreyttri umfjöllun um rekstrarumhverfi fyrirtækja, breytingar á regluverki og sjálfbærnimál, auk greina um þróun vinnumarkaðarins og áhrif gervigreindar á verslun og þjónustu.
Á vettvangi hagsmunagæslunnar komu meðal annars til umfjöllunar áhrif EUDR-reglugerðarinnar, hafnalög, námsmat í grunnskólum og framtíð úrgangsmála.
Smelltu á blaðið hér fyrir neðan.
FRÉTTAMOLAR SVÞ JÚNÍ 2026
01/06/2026 | Fréttamolar SVÞ, Fréttir, Greining, Í fjölmiðlum, Umsagnir, Úr hagsmunagæslunni, Útgáfa, Verslun, Þjónusta
Maí einkenndist af umræðu um rekstrarskilyrði fyrirtækja, vaxandi erlenda netverslun og auknar kvaðir í regluverki.
SVÞ vakti sérstaka athygli á áhrifum „gullhúðaðra“ peningaþvættisreglna á bílgreinina og kallaði eftir einfaldara og skýrara regluverki sem styður samkeppnis-hæfni íslenskra fyrirtækja.Þá fjölluðu samtökin jafnframt um þróun bílamarkaðarins, umhverfismál og nýja greiningu á netverslun á Íslandi.
Smelltu á blaðið hér fyrir neðan.
FRÉTTAMOLAR SVÞ MAÍ 2026
04/05/2026 | Fréttamolar SVÞ, Fréttir, Greining, Í fjölmiðlum, Umsagnir, Úr hagsmunagæslunni, Útgáfa, Verslun, Þjónusta
Apríl mánuður einkenndist af skýrri og markvissri hagsmunagæslu SVÞ, sérstaklega í tengslum við eldsneytismál, verðstýringu og lagasetningu. Viðfangsefnin voru veigamikil og snertu beint rekstrarumhverfi fyrirtækja. Umræða um samkeppnishæfni, hlutverk stjórnvalda og undirbúning lagasetningar var áberandi. Einnig var sjónum beint að samgöngumálum sem lykilþætti í starfsemi fyrirtækja.
Smelltu á blaðið hér fyrir neðan.
FRÉTTAMOLAR SVÞ APRÍL 2026