14/08/2026 | Stjórnvöld, Umsagnir, Úr hagsmunagæslunni
SVÞ og Samtök atvinnulífsins (SA) telja að Samkeppniseftirlitið dragi of sterkar ályktanir um verðmyndun og samkeppni á eldsneytismarkaði áður en fullnægjandi gögn liggja fyrir. Samtökin vara jafnframt við íþyngjandi inngripum á borð við hámarksverð eða hámarksálagningu án ítarlegrar greiningar á rekstrarskilyrðum markaðarins.
Í umsögninni er bent á að verð og álagning á eldsneyti verði ekki metin án þess að horft sé til kostnaðar og áhættu sem fylgir innkaupum, flutningum, birgðahaldi, gengissveiflum og fjármögnun. Þá sé íslenski markaðurinn smár og uppbygging hans frábrugðin mörgum erlendum samanburðarmörkuðum. Alþjóðlegur verðsamanburður geti því gefið villandi mynd ef ekki er tekið tillit til þessara þátta.
Samtökin gera einnig athugasemdir við lagalegar forsendur umræðuskjalsins og telja mikilvægt að skýr greinarmunur sé gerður á sérstöku eftirliti með tímabundinni lækkun virðisaukaskatts og almennu eftirliti samkvæmt samkeppnislögum. Áður en gripið verði til frekari aðgerða þurfi að liggja fyrir heildstæð greining á verðmyndun, kostnaði, samkeppnisaðstæðum og áhrifum yfirstandandi orkuskipta á eldsneytismarkaðinn.
Sjá nánar hér —> Umsögn um umræðuskjal SKE um eldsneytismarkaðinn
11/08/2026 | Stjórnvöld, Umsagnir, Úr hagsmunagæslunni
Lausasöluhópur SVÞ tekur undir að samræmd umgjörð um tóbaks- og nikótínvörur geti stutt markmið stjórnvalda um minni notkun, sérstaklega meðal ungmenna. Samtökin telja jafnframt að nýta eigi breytingarnar til að draga úr hömlum á sölu nikótínlyfja sem ætlað er að hjálpa fólki að draga úr nikótínnotkun og hætta henni.
Í umsögninni er bent á að nikótínlyf séu frábrugðin öðrum nikótínvörum þar sem þau eru ætluð til að vinna gegn nikótínfíkn og hafi gagnreynda virkni. Þrátt fyrir það megi að meginstefnu aðeins selja þau í lyfjaverslunum og utan þeirra sé sala takmörkuð við minnstu pakkningar og lægstu styrkleika.
Lausasöluhópur SVÞ hvetur heilbrigðisráðuneytið því til að endurskoða þessar takmarkanir og bæta aðgengi að nikótínlyfjum. Slík breyting væri að mati hópsins í samræmi við markmið frumvarpsins um að draga úr notkun tóbaks og nikótíns.
Sjá nánar –> 110826 Umsögn lausasöluhSVÞ mál samr 145-2026
10/07/2026 | Stjórnvöld, Umsagnir, Úr hagsmunagæslunni
SVÞ og Bílgreinasambandið (BGS) hafa veitt Samkeppniseftirlitinu umsögn vegna samruna Heklu fasteigna og Bílsonar, þar sem fjallað er um samkeppnisaðstæður á markaði fyrir viðgerðir og viðhald bifreiða og sölu varahluta.
Í umsögninni kemur fram að samkeppni á markaði fyrir viðgerðir og viðhald virðist á heildina litið virk miðað við smæð íslenska markaðarins. Aðgengi sjálfstæðra verkstæða að viðgerðarupplýsingum og varahlutum er almennt talið gott og verkstæðum stendur jafnan til boða að sækja um viðurkenningu framleiðenda. Fjárfesting í sérhæfðum búnaði og greiningartækjum getur þó verið kostnaðarsöm og þannig takmarkað möguleika minni verkstæða.
SVÞ og BGS benda jafnframt á að fjölgun rafbíla kalli á aukna sérþekkingu innan bílgreinarinnar. Fleiri sjálfstæð verkstæði hafa byggt upp hæfni til að þjónusta raf- og tvinnbíla, en áfram er mikilvægt að efla menntun og þekkingu samhliða breytingum á bílaflotanum. Þá er bent á að aðgengi að notuðum varahlutum sé takmarkað á Íslandi, þótt aðgengi að varahlutum almennt sé gott.
Smelltu — > 20260710 Umsögn vegna samruna Heklu fasteigna ehf. og Bílson eh
30/06/2026 | Stjórnvöld, Umsagnir, Úr hagsmunagæslunni
SVÞ telja að fyrirhugaðar breytingar á lögum og reglugerð um Byggðastofnun tryggi ekki með nægilega skýrum hætti stjórnunarlegt og fjárhagslegt sjálfstæði stofnunarinnar við meðferð póstmála. Samtökin benda á að stjórn Byggðastofnunar fari áfram með mikilvæga þætti almennrar stefnumótunar og ákvörðunar um rekstrar- og starfsáætlun, sem geti haft áhrif á þau verkefni sem ætlunin er að aðskilja frá annarri starfsemi stofnunarinnar.
Smelltu — > 20263006 : Umsögn um drög að frumvarpi um breytingar á lögum um Byggðastofnun og drög að reglugerð um Byggðastofnun
30/06/2026 | Stjórnvöld, Umsagnir, Úr hagsmunagæslunni
SVÞ telur að greining Samkeppniseftirlitsins á dagvöruverði þurfi að taka betur mið af rekstrarumhverfi verslunar og áhrifum opinbers regluverks. Samtökin benda á að rekstrarafkoma dagvöruverslana sé sambærileg við nágrannalönd, en að há tollvernd, takmarkanir á innflutningi og aðrar opinberar aðgangshindranir hafi veruleg áhrif á verðlag og samkeppni. Þá hvetur SVÞ til þess að greining á matvöruverði taki mið af öllum þáttum virðiskeðjunnar og þeim forsendum sem móta samkeppni á íslenskum dagvörumarkaði.
Smelltu –> Sjónarmið vegna umræðuskjals – rit nr. 1/2006 Dagvöruverð á Íslandi Þróun og alþjóðalegur samanburður
29/06/2026 | Fréttamolar SVÞ, Fréttir, Greining, Í fjölmiðlum, Umsagnir, Úr hagsmunagæslunni, Útgáfa, Verslun, Þjónusta
Júní einkenndist af fjölbreyttri umfjöllun um rekstrarumhverfi fyrirtækja, breytingar á regluverki og sjálfbærnimál, auk greina um þróun vinnumarkaðarins og áhrif gervigreindar á verslun og þjónustu.
Á vettvangi hagsmunagæslunnar komu meðal annars til umfjöllunar áhrif EUDR-reglugerðarinnar, hafnalög, námsmat í grunnskólum og framtíð úrgangsmála.
Smelltu á blaðið hér fyrir neðan.
FRÉTTAMOLAR SVÞ JÚNÍ 2026
Síða 3 af 8«12345...»Síðasta »