Ný umfjöllun Morgunblaðsins um áhrif peningaþvættisreglna á fyrirtæki sem selja bifreiðar og vélar, þ. á m. landbúnaðartæki, varpar enn á ný ljósi á þá stöðu sem SVÞ hafa ítrekað bent á að sé mjög þung fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki. Samtökin segja þungt og flókið regluverk hafa skapað fyrirtækjum verulegan kostnað, aukið rekstraráhættu og valdið fólki ónæði án þess að raunveruleg þörf sé til staðar.
Í tveimur fréttum Morgunblaðsins í dag er fjallað annars vegar um stöðu bílaumboða og hins vegar fyrirtækja í sölu og þjónustu landbúnaðarvéla. Þar lýsa forsvarsmenn fyrirtækja því hvernig umfangsmiklar kröfur um áreiðanleikakannanir, skráningar og upplýsingasöfnun hafi valdið mikilli yfirbyggingu og kostnaði í daglegum rekstri og skapað fyrirtækjunum áhættu.
Fyrirtæki bera þungan kostnað af auknum eftirlitskröfum
Í umfjöllun blaðsins kemur fram að bílgreinin hafi þurft að framkvæma þúsundir áreiðanleikakannana vegna viðskipta og að fyrirtæki hafi þurft að verja umtalsverðum fjármunum og mannafla í að uppfylla sífellt ítarlegri kröfur eftirlitsaðila. Jafnframt er bent á að reglurnar séu mun þyngri hér á landi en í nágrannaríkjum og innan Evrópu.
SVÞ hafa að reglurnar séu „gullhúðaðar“, þar sem innleiðing hér á landi gangi í reynd miklu lengra en Evróputilskipanir gera ráð fyrir og gert sé annarsstaðar. Hár kostnaður og meiri stjórnsýslubyrði gerir samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja laka og hækkar söluverð bifreiða, véla og tækja.
Sérstaklega hefur verið bent á að umfang eftirlits- og upplýsingaskyldu hafi í mörgum tilvikum færst yfir á fyrirtæki sem hvorki hafi hefðbundnar rannsóknarheimildir né gegni í raun hlutverki opinberra eftirlitsaðila. Fyrirtæki séu þannig látin bera sífellt meiri ábyrgð á rannsóknum og sæti sektum ef ekki er að rannsókn staðið.
SVÞ segja það áhyggjuefni að þrátt fyrir ítrekaða umræðu og sívaxandi gagnrýni úr atvinnulífinu hafi enn ekkert heyrst frá dómsmálaráðherra um hvort ráðast eigi í endurskoðun á framkvæmd regluverksins eða mat á áhrifum þess á samkeppnishæfni fyrirtækja. Kallað var eftir fundi með ráðherra í febrúar síðastliðinn sem enn hefur ekki verið boðað til.
Kallað eftir svörum frá dómsmálaráðherra
Samtökin telja að stjórnvöld hafi ekki gengið úr skugga um að jafnvægi ríki milli markmiða peningaþvættisvarna annars vegar og rekstrarskilyrða fyrirtækja hins vegar. Telja samtökin unnt að tryggja markvisst og skilvirkt eftirlit án þess að íslensk fyrirtæki sitji uppi með meiri byrðar og kostnað en fyrirtæki í okkar samanburðarríkjum.
_____________________
Sjá umfjöllun í Morgunblaðinu í dag 26.05.2026

