SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu og sjálfstæðar sérvöruverslanir með áfengi hafa sent alþingismönnum áskorun um að setja skýran lagaramma utan um vefverslun með áfengi. Neytendur hafa þegar valið aukið valfrelsi en löggjöfin hefur ekki fylgt þróun markaðarins. 

Nýleg könnun Gallup sýnir að um þriðji hver Íslendingur hefur keypt áfengi í vefverslun. Hlutfallið nálgast 60% meðal fólks á aldrinum 20–39 ára. Varanleg breyting hefur því orðið á kauphegðun almennings og vefverslun með áfengi er þegar orðin hluti af íslenskum veruleika. 

SVÞ og sérvöruverslanirnar telja brýnt að Alþingi viðurkenni þessa stöðu og setji skýrar og samræmdar reglur um starfsemina. Reglurnar þurfi meðal annars að taka til leyfisveitinga, opnunartíma, staðsetningar og aðgengi, upplýsingagjafar, aldurseftirlits og afhendingar.

Markmiðið sé að tryggja ábyrga starfsemi, virkt eftirlit og jafnræði milli allra söluaðila. Sömu kröfur þurfi að gilda um íslensk og erlend fyrirtæki sem selja áfengi til íslenskra neytenda. 

„Neytendur hafa þegar valið. Þriðji hver landsmaður hefur keypt áfengi í vefverslun og hlutfallið er enn hærra meðal yngra fólks. Löggjöfin er hins vegar barn síns tíma og tekur ekki mið af þeim markaði sem hefur orðið til með breyttri kauphegðun og auknum hraða og aukinni skilvirkni í flutningum á þeim tíma sem liðinn er frá því að Ísland gerðist aðili að að EES-samningnum,“ segir Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ. 

Ábyrgir rekstraraðilar hafa innleitt aldurseftirlit við kaup og afhendingu. Skýran lagaramma skortir hins vegar til að tryggja að sömu kröfur gildi um alla sem selja áfengi til íslenskra neytenda og að stjórnvöld hafi fullnægjandi úrræði til eftirlits. 

„Það er breið samstaða um að vernda börn og ungmenni og vinna gegn skaðlegri áfengisneyslu. Skýrar reglur og skilvirkt eftirlit eru forsenda þess að þau markmið náist. Um smátt skref er að ræða og því getur ÁTVR áfram gegnt sínu hlutverki samhliða því að Alþingi setji vefverslun skýran og nútímalegan ramma,“ segir Benedikt. 

SVÞ og sérvöruverslanir með áfengi hafa jafnframt hrundið af stað upplýsingaherferð undir yfirskriftinni „Þriðji hver verslar hér“. Markmið hennar er að vekja athygli á breyttri kauphegðun og þeirri staðreynd að stór hluti þjóðarinnar nýtir nú þegar aukið val við áfengiskaup. 

Nánari upplýsingar um stöðu vefverslunar með áfengi, þróun markaðarins og helstu rök fyrir skýrari lagaramma má finna á Valfrelsi.is. 

Smelltu -> SVÞ Fréttatilkynning Skorað á Alþingi að uppfæra rammann um áfengissölu til að hlaða niður fréttatilkynningunni.